Fyrir tveimur árum komu myndirnar af Jan og Jaagpen fram í dagsljósið. Eftir ítarlega rannsókn sérfræðinga gat Ríkislistasafnið (Rijksmuseum) í Amsterdam fengið fullvissu um að verkin væru sannarlega máluð af meistaranum árið 1635.
Verkin tvö eru sögð mjög áhugaverð – ekki síst vegna þess hversu lítil þau eru, en þetta eru minnstu portrettmyndir sem Rembrandt gerði, en líka vegna þess að Jan og Jaagpen tengdust listamanninum fjölskylduböndum. Talið er að Rembrandt hafi málað portrettin í greiðaskyni við þau hjónin og er stíllinn sagður kraftmikill. Myndirnar eru 20×16,5 cm að stærð.
Holterman-fjölskyldan eignaðist þessi merkilegu smáverk Rembrandts fyrr á þessu ári. Ríkislistasafnið samdi við fjölskylduna um að fá myndirnar að langtímaláni og var þeim komið fyrir hjá öðrum verkum hans á safninu í dag.
![](https://ff7.is/wp-content/uploads/2023/12/IMG_0219-1067x800.jpeg)
Vinnustofa Rembrandts í húsi hans í Amsterdam – MYND: ÓJ