Það eru óvenju margir lögbundnir frídagar á virkum degi á þessu nýja ári eða tólf í heildina. Í fyrra voru þeir tíu og árið þar á undan aðeins níu. Það eru því fleiri tækifæri í ár til að teygja úr fríinu án þess að nýta alla orlofsdagana.
Fyrsti rauði dagur ársins er reyndar í dag en sá næsti er skírdagur sem að þessu sinni er fyrir síðustu helgina í mars. Páskarnir eru nefnilega viku fyrr nú í ár en þá hátíð nota ófáir til að fara út í heim. Jafnvel á slóðir þar sem farið er að vora. Og í maí verður orðið sumarlegt víða út í heimi en í þeim mánuði verða stöku frídagarnir þrír eins og sjá má hér fyrir neðan.
17. júní var á laugardegi í fyrra en lendir nú á mánudegi enda er 2024 hlaupaár.
Rauðu dagarnir í ár:
Nýársdagur, 1. janúar – mánudagur
Skírdagur, 28. mars – fimmtudagur
Föstudagurinn langi, 29. mars – föstudagur
Annar í páskum, 1.apríl – mánudagur
Sumardagurinn fyrsti, 25.apríl – fimmtudagur
Alþjóðlegur frídagur verkafólks, 1. maí – miðvikudagur
Uppstigningardagur, 9. maí – fimmtudagur
Annar í hvítasunnu, 20. maí – mánudagur
Þjóðhátíðardagurinn, 17. júní – mánudagur
Frídagur verslunarmanna, 5. ágúst – mánudagur
Jóladagur, 25. desember – miðvikudagur
Annar í jólum, 26. desember, fimmtudagur