Samfélagsmiðlar

Næst á dagskrá að sækja farangurinn

Nú geta farþegar á leið úr landi sent töskurnar á undan sér út á Keflavíkurflugvöll. Þess verður þó ekki langt að bíða að þjónustan verði aukin enn frekar segir Valgeir Ágúst Bjarnason hjá Bagbee.

Valgeir Ágúst Bjarnason hjá Bagbee.

„Viðtökurnar hafa verið mjög góðar og þeir sem hafa prófað eru himinlifandi. Einkunn okkar á Trustpilot er framúrskarandi og virkilega gaman að sjá hvað BagBee er góð lausn fyrir marga,“ segir Valgeir Ágúst Bjarnason, annar eigenda Bagbee, sem ný býður farþegum upp á að innrita á farangur og flytja hann út á Keflavíkurflugvöll.

Eftirspurnin eftir því að láta sækja farangurinn við komuna til landsins er einnig fyrir hendi. Sérstaklega frá farþegum sem hingað koma frá Asíu að sögn Valgeirs.

„Við bjóðum nú þegar upp á farangursburð og flutning fyrir hópa sem koma til landsins og erum að vinna í því að koma á komuþjónustu fyrir einstaklinga. Í framtíðinni er svo ætlunin að geta boðið upp á að BagBee taki á móti töskunum fyrir viðskiptavini, áður en þær skila sér á færibandið. Við komum svo töskunum upp á hótel eða heim til fólks síðar um daginn.“

Ennþá eru Íslendingar fjölmennari í hópi viðskiptavina fyrirtækisins en Valgeir gerir ráð fyrir að það jafnist út í sumar þegar ferðamannastraumurinn hingað þyngist.

Bagbee hefur til að mynda aukið þjónustuna við hótel og ferðaskipuleggjendur og býður þeim upp á nákvæmari tímasetningar á afhendingum á töskum og eins föstum tímum á ákveðnum hótelum. Þar með geta gestir þeirra bókað þjónustuna með stuttum fyrirvara. „Einnig höfum við náð að hraða mjög innritun hópa,“ bætir Valgeir við.

Nú er mikið framboð á flugi til borga í nágrenni við skíðabrekkur Alpanna og hjá Bagbee fjölgar skíðunum sem flutt eru út á Keflavíkurflugvöll. „Það eru margir sem sjá líka sparnað í þessu því með því að losna við skíðin er hægt að sameinast í bíla út á flugvöll og þannig spara sér bílastæðagjöld á meðan skíðafríinu stendur,“ bendir Valgeir á.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …