Icelandair og Emirates skrifuðu fyrr í dag undir viljayfirlýsingu um samstarf. Munu flugfélögin gera viðskiptavinum sínum „kleift að tengja á þægilegan hátt á milli leiðakerfa flugfélaganna“ að því kemur fram í tilkynningu. Heimahöfn Emirates er í Dubai en flugfélagið flýgur til fjölda áfangastaða Icelandair í Evrópu.
„Það er mjög ánægjulegt að segja frá samstarfi við Emirates sem við vinnum nú að en það mun opna nýja og spennandi ferðamöguleika fyrir viðskiptavini okkar um Miðausturlönd og Asíu. Emirates verður sjöunda alþjóðlega samstarfsflugfélag okkar en við vinnum markvisst að því að fjölga samstarfsflugfélögum sem bæði styrkir tekjumyndun félagsins og víkkar út leiðakerfi okkar. Við leggjum áherslu á samstarf við félög sem bjóða frábæra þjónustu og spennandi tengingar sem á svo sannarlega við um Emirates,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningu.
![](https://ff7.is/wp-content/uploads/2024/03/Icelandair-emirates-809x800.jpg)
„Við erum mjög ánægð með að efla samstarf okkar við Icelandair. Leiðakerfi félagsins er góð viðbót við leiðakerfi okkar í Evrópu þar sem það bætir við fjölda tenginga og gefur viðskiptavinum okkar tækifæri á enn fjölbreyttari ferðalögum. Við höfum fulla trú á að samstarfið muni skila raunverulegum ávinningi fyrir Emirates og viðskiptavini okkar og við erum spennt fyrir því að styrkja samstarfið enn frekar til framtíðar,“ segir Adnan Kazim, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri sölu hjá Emirates.