Samfélagsmiðlar

Keflavíkurflugvöllur fær viðurkenningu fyrir góða þjónustu

MYND: ISAVIA

Alþjóðasamtök flugvalla (ACI) hafa sjötta árið í röð verlaunað Keflavíkurflugvöll fyrir þjónustugæði. Þetta er niðurstaða alþjóðlegrar þjónustukönnunar á vegum ACI sem gerð er ár hvert á um 400 flugvöllum um allan heim. Keflavíkurflugvöllur er í hópi bestu flugvalla í Evrópu í sínum stærðarflokki, 5-15 milljónir farþega á ári, þegar kemur að þjónustugæðum að því segir í tilkynningu.

Keflavíkurflugvöllur hefur tekið þátt í þjónustukönnuninni, Airport Service Quality Programme (ASQ), í nærri tvo áratugi og hefur völlurinn hlotið þessa viðurkenningu ríflega tíu sinnum og nú sjötta árið í röð. ASQ þjónustukönnunin er virtasta og marktækasta mæling sem gerð er á þjónustugæðum flugvalla. 

„Við erum afskaplega stolt af þessari viðurkenningu,” segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia. „Það er sérstaklega ánægjulegt að fá þessa viðurkenningu fyrir árið í fyrra á sama tíma og við á Keflavíkurflugvelli stöndum í miklum framkvæmdum og breytingum sem mátti gera ráð fyrir að hefðu einhver áhrif á upplifun farþega.” 

Keflavíkurflugvöllur er einn af þeim átta evrópsku flugvöllum í sínum flokki sem fá hæstu meðaleinkunn í könnuninni og fær því þessa viðurkenningu. Aðrir flugvellir sem fengu viðurkenningu í sama flokki eru Róm Ciampino flugvöllur á Ítalíu, Nikola Tesla flugvöllur í Belgrad í Serbíu, Izmir Adnan Menderes flugvöllur í Izmir í Tyrklandi, Linate flugvöllur í Mílanó á Ítalíu, Alþjóðaflugvöllurinn á Möltu, Porto flugvöllur í Portúgal og  Þessalóníku flugvöllur í Grikklandi.

„Það er sameiginlegt átak allra á Keflavíkurflugvelli, með metnað fyrir þjónustu við okkar viðskiptavini að leiðarljósi, sem hefur skilað okkur þessum árangri,” segir Guðmundur Daði. „Flugvallarsamfélagið allt hefur unnið þrekvirki því  völlurinn er metinn út frá allri starfseminni sem þar fer fram. Þetta hefur verið samhent vinna hjá öllum sem starfa á Keflavíkurflugvelli, hvort sem það er starfsfólk Isavia, flugafgreiðsluaðila, rekstraraðilar veitingastaða, verslana, flugfélaga, rútufyrirtækja og bílaleiga, lögreglu eða tolls svo einhverjir í samfélaginu á Keflavíkurflugvelli séu nefndir.”

„Við hjá ACI fögnum því að í fyrra hafi flugvöllum í ASQ verkefninu fjölgað og þeir orðið fleiri en fjögur hundruð sem er met,“ segir Luis Felipe de Oliveira, framkvæmdastjóri ACI World. „Þetta sýnir enn frekar að aðildarflugvellir okkar hafa skuldbundið sig til að setja farþegana í fyrsta sæti. Við hjá ACI viljum einnig þakka gestum okkar fyrir að hafa gefið sér tíma til að veita umsögn í tæplega 600.000 könnunum.“ Luis Felipe de Oliveira bætir því við að nú þegar væntingar farþega séu að þróast hratt sé það ekki bara takmark að tyggja framúrskarandi þjónustu heldur sé það lykilatriði svo flugvellir séu ekki bara gátt heldur eftirminnilegir áfangastaðir í sjálfu sér.“

ACI tilkynnti um niðurstöðurnar í dag en verðlaunin verða veitt við hátíðlega athöfn á þjónusturáðstefnu samtakanna í Atlanta í Bandaríkjunum í september.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …