Það sem af er ári hafa 117 nýir bílar frá Tesla komið á götuna hér á landi en fyrstu fjóra mánuðina í fyrra voru þeir 660 samkvæmt Samgöngustofu. Samdrátturinn nemur 82 prósentum en til samanburðar hefur nýskráðum rafbílum hér á landi fækkað um 74 prósent á milli ára.
Af þessum 117 nýju Tesla bílum hér á landi var enginn af gerðinni Cybertruck sem kom á markað vestanhafs í lok desember í fyrra. Sá er nefnilega ekki ennþá í boði í Evrópu og ekki liggur fyrir hvenær það breytist en áhugasamir mun þó geta skoðað þennan umtalaða pallbíl í Reykjavík í sumar. Í tilkynningu frá Tesla segir að Cybertruck verði til sýnis hjá Tesla Vatnagörðum dagana 28. til 30. júní.
Stoppið í Reykjavík er hluti af kynningarferð Tesla um Evrópu með hinn nýja pallbíl en sem fyrr segir liggur ekki fyrir hvenær hann verði fáanlegur hér á landi.