Stuttu fyrir síðustu mánaðamót sagði Ólafur Þór Jóhannesson upp stöðu sinni sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play en þangað var hann ráðinn í október 2022. Ólafur Þór lætur af daglegum störfum fyrir Play í dag en verður þó félaginu áfram innan handar en nýr fjármálastjóri hefur ekki verið ráðinn.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri og einn stærsti hluthafinn í Play, mun því gegna stöðu fjármálastjóra tímabundið meðan unnið er að ráðningu nýs fjármálastjóra samkvæmt svari frá flugfélaginu.
—
FF7 Í 30 DAGA FYRIR 300 KRÓNUR – FULLT VERÐ Í FRAMHALDINU EN ENGINN BINDITÍMI