Samfélagsmiðlar

Kaupa miklu frekar bjór úr krana en í kippu

Andri Þór Guðmundsson forstjóri Ölgerðinnar.

„Erlendir ferðamenn hafa jákvæð áhrif á reksturinn, engin spurning. Við sáum til að mynda mikinn mun í sölu á veitingastöðum og hótelum eftir fall Wow Air og að sjálfsögðu aftur þegar heimsfaraldurinn hófst. Þá vó samt upp á móti að Íslendingar fóru þá að ferðast um landið. Aukin sala í fyrra skrifast að hluta til á að túristum fjölgaði hér á ný,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðinnar, um áhrif ferðaþjónustunnar á reksturinn í tilefni hlutafjárútboðs fyrirtækisins sem hefst eftir helgi.

Þar verður nærri þrjátíu prósent hlutur seldur og í framhaldinu verður fyrirtækið skráð í Kauphöllina.

Í útboðslýsingu Ölgerðarinnar segir að gert sé ráð fyrir allt að 3,9 milljarða króna rekstrarhagnaði á þessu ári. Tekið er fram að helsta óvissan varðandi þessa spá liggi í komum ferðamanna og eins utanlandsferðum Íslendinga.

Þessi tveir hópar versla þó áfengi hér á landi með ólíkum hætti því að sögn Andra Þórs þá kaupa útlendingar helst áfengi á hótelum og veitingastöðum en mun minna í Vínbúðunum eða komuverslun Fríhafnarinnar. „Aftur á móti versla þeir töluvert í brottfararversluninni í Leifsstöð þar sem þeir kaupa til að mynda minjagripi í formi brennivíns,“ bætir hann við.

Tölur Rannsóknarseturs verslunarinnar sýna jafnframt að langoftast er greitt fyrir tollfrjálsan varning með innlendum greiðslukortum en ekki erlendum. Engu að síður eru útlendingar í meirihluta í Leifsstöð. Í síðasta mánuði nam kortavelta í tollfrjálsri verslun til að mynda 920 milljónum króna og þar af voru sjö hundruð milljónir greiddar með íslenskum kortum.

Það eru því sterkar vísbendingar um að það séu aðallega Íslendingar sjálfir sem nýta sér það að geta keypt ódýrara áfengi í töskusal Leifsstöðvar. Sala á tollfrjálsum varningi í flugstöðvum er líka vanalega eingöngu fyrir brottfararfarþega. Hér á landi, í Noregi og Sviss geta farþegar þó einnig keypt þess háttar vörur við komuna enda eru löndin þrjú öll utan Evrópusambandsins. Aðildarríkjunum eru meiri skorður settar við sölu á vörum til flugfarþega.


Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …