Samfélagsmiðlar

Tímamót hjá Túrista

Sístækkandi áskriftarhópur gerir Túrista kleift að efla útgáfuna til muna.

Óðinn Jónsson hefur störf hjá Túrista um miðjan júní.

Nú í ágúst verða 13 ár frá því Túristi fór í loftið og þær mörg þúsund greinar sem birst hafa á síðunni eru allar skrifaðar af stofnanda og ritstjóra síðunnar, Kristjáni Sigurjónssyni. Nú er komið að kaflaskilum því Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, gengur til liðs við Túrista um miðjan júní og verður blaðamaður vefmiðilsins.

„Mér þykir mikill fengur í Óðni, sem er í hópi reyndustu fjölmiðlamanna landsins, og ég er honum þakklátur fyrir að taka stökkið. Það verður spennandi að vinna með honum aftur en við ræddum um árabil ferðamál frá ýmsum hliðum vikulega á Morgunvakt Rásar 1, á meðan hann stýrði þættinum. 

Sú ákvörðun að breyta Túrista í áskriftarvef á sínum tíma heppnaðist og nú er kominn grunnur að öflugri útgáfu. Það má líka ljóst vera að fjölmiðill sem seldur er í áskrift á allt undir færum og reyndum blaðamönnum. Ráðning Óðins er því mikilvægur liður í því að breikka efnistökin enda býður umfjöllun um ferðaþjónustu og ferðalög upp á marga möguleika,“ segir Kristján Sigurjónsson, ritstjóri og útgefandi Túrista.

 „Mér þykir þetta afar spennandi tækifæri. Ég held að áskriftarvefur eins og Túristi, sem leggur rækt við mikilvægt sérsvið, eigi framtíð fyrir sér. Kristján hefur unnið þrekvirki í sínu starfi en ég vonast til að styrkja vefinn. Það er auðvitað frábært að fá tækifæri til að spreyta sig aftur í blaðamennsku og ég er þakklátur fyrir það,” segir Óðinn Jónsson.

Óðinn starfaði lengi hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og þáttastjórnandi, fréttamaður á Norðurlöndum, þingfréttamaður, fréttastjóri hljóðvarps og síðan RÚV. Síðustu þrjú árin hefur Óðinn unnið sem ráðgjafi hjá samskiptastofunni Aton.JL, einkum að samskiptamálum og fjölmiðlaráðgjöf fyrir stækkunarverkefni Isavia á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við breska byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Mace.

Smelltu hér til að gerast áskrifandi

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …