Samfélagsmiðlar

Play fór á flug eftir uppgjör Icelandair

Viðskipti með hlutabréf í flugfélaginu Play hafa verið lítil að undanförnu og þegar Kauphöllin opnaði síðastliðinn föstudagsmorgun hafði veltan með bréf Play numið rétt um eitt hundrað milljónum króna í júlí. Á föstudaginn var veltan hins vegar þrisvar sinnum meiri eða samtals 314 milljónir króna.

Þar af keypti maki eins af stjórnarmönnum Play bréf fyrir um 109 milljónir króna samkvæmt því sem fram kom í tilkynningu. Gengi hlutabréfa í Play hækkaði um 3,4 prósent á föstudag.

Til samanburðar fóru bréfin í Icelandair upp um 3,02 prósent í 226 milljón króna veltu þennan síðasta viðskiptadag vikunnar. En það var eftir lokun Kauphallarinnar á fimmtudaginn sem Icelandair birti uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung. Þar var niðurstaðan hagnaður upp á um hálfan milljarð króna og greinilegt að flugfélagið fær mun betur borgað fyrir hvert sæti en verið hefur síðust misseri.

Uppgjör Icelandair hefur því mögulega hleypt lífi viðskipti með hlutabréf Play en bíða þarf fram til 26. ágúst eftir uppgjöri þess félags fyrir annan ársfjórðung. Play er nefnilega rúmum mánuði síðar á ferðinni með sitt uppgjör en keppinauturinn.

En þrátt fyrir að Play hafi hækkað meira en Icelandair á föstudaginn þá var það síðarnefnda hástökkvari vikunnar í flokki skráðra norrænna flugfélaga. Bréf Icelandair hækkuðu um níu prósent í vikunni en í öðru sæti var SAS með nærri átta prósenta stökk.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …