Samfélagsmiðlar

Samkeppni íslensku félaganna harðnar enn frekar í Washington

Farþegar á tveimur flugvöllum í nágrenni Washington munu frá og með næsta sumri geta valið á milli ferða Icelandair og Play.

washington hvitahusið David Everett Strickler

Það er álíka langt frá Hvíta húsinu að Dulles flugvelli og til Baltimore-Washington flugvallar.

Lengi vel skiptu Icelandair og Wow Air markaðnum í höfuðborg Bandaríkjanna á milli sín með þeim hætti að það fyrrnefnda gerði út frá Dulles flugvelli en Wow Air fókusaði á Baltimore-Washington flugvöll. Báðir eru álíka langt frá miðbæ Washington borgar.

Sumarið 2018 skoraði Icelandair svo keppinaut sinn á hólm í Baltimore en hrökklaðist þaðan eftir eina mislukkaða sumarvertíð. Árið eftir fór Wow Air á hausinn.

Icelandair tók svo upp þráðinn í Baltimore nú í sumar og hefur att kappi við Play þar í borg síðustu mánuði enda lá það fyrir að nýliðinn myndi reyna að feta í fótspor flugfélags Skúla Mogensen með því að fljúga til og frá Baltimore. Nýverið ákváðu stjórnendur Icelandair að halda ferðunum til borgarinnar áfram í vetur.

Kollegar þeirra hjá Play ætla að svara þeirri ákvörðun með því að skora sinn helsta keppinaut á hólm á Washington Dulles flugvelli. Þann 26. apríl á næsta ári fer Play nefnilega sína fyrstu ferð þangað og í framhaldinu munu þotur félagsins fljúga daglega til Dulles samkvæmt því sem fram kom á fundi forstjóra Play með fjárfestum nú í morgun.

Samkeppni íslensku félaganna tveggja verður því óvenju hörð næsta sumar á bandaríska höfuðborgarsvæðinu.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …