Samfélagsmiðlar

Áfram taprekstur hjá Play

PLAY flutti rúmlega 181 þúsund farþega á öðrum fjórðungi þessa árs.

Play tapaði 3,3 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og þar af 1,9 milljarði frá apríl til júní ef miðað er við meðalgengi bandaríkjadollara, uppgjörsmynt flugfélagsins. Tapið síðastliðið eitt og hálft ár nemur 6,1 milljarði kr. en Play safnaði 10,3 milljörðum kr. í tveimur hlutafjárútboðum í byrjun síðasta sumars.

Þar var fjárfestum kynnt rekstraráætlun sem gerði ráð fyrir 4 milljón dollara hagnaði í ár. Sú upphæð jafngildir 566 milljónum í dag.

Til að ná þessu markmiði verður afkoma flugfélagsins að vera jákvæð um nærri fjóra milljarða króna á seinni hluta ársins. En samkvæmt tilkynningu sem flugfélagið sendi út í dag, í tengslum við uppgjörið, þá er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarafkomu seinni sex mánuði ársins. Ekki eru þó nefndar neinar tölur í því samhengi.

Play greiddi nærri 2,5 milljarða króna í eldsneyti og losunarkvóta á síðasta ársfjórðungi samkvæmt uppgjörinu en sú upphæð var nærri þrefalt hærri en launakostnaður félagsins á tímabilinu. Olíuverð hefur hins vegar farið lækkandi því tonn af þotueldsneyti kostar í dag 1133 dollara sem er nærri fimmtungs lækkun frá því sem var fyrir tveimur mánuðum síðan. Play nýtur þó ekki allrar þessarar lækkunar því félagið greiðir Skeljungi 1.210 dollara á tonnið fyrir 20 prósent af eldsneytisnotkuninni.

„Eftir hraða en örugga uppbyggingu með fjölda nýrra áfangastaða, innleiðingu tengiflugsleiðakerfis og móttöku flugvéla er reksturinn loks kominn í fastar skorður. Ég er stoltur af öllu starfsfólki Play sem hefur komið fyrirtækinu á koppinn á stuttum tíma í mjög kviku og flóknu rekstrarumhverfi. Við komum út úr þessum uppbyggingarfasa með sterka fjárhagsstöðu og loks eru ytri aðstæður okkur hagfelldari eftir nokkurn mótvind síðustu misseri. Til dæmis sjáum við eldsneytisverð fara ört lækkandi. Við sjáum fram á bjarta tíma, bókunarstaðan er sterk og til stendur að skila jákvæðri rekstrarafkomu á síðari helmingi ársins,“ skrifar Birgir Jónsson, forstjóri Play, í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að flugfélagið geri ráð fyrir að ráða um 200 nýja starfsmenn á næstunni en hjá félaginu starfa í dag um þrjú hundruð manns.

Áætlun um fjölda farþega í ár hefur hins vegar verið lækkuð eða úr 865 þúsund niður í 800 þúsund. Stjórnendur félagsins voru þó farnir að tala um eina milljón farþega í ár nú í vor.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …