Þráinn Vigfússon sem verið hefur framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Vita síðustu þrjú ár lét af störfum í gær. Áður var Þráinn fjármálastjóri fyrirtækisins.
Vita sérhæfir sig í sölu á utanlandsferðum til Íslendinga og er alfarið í eigu Icelandair en Bogi Nils Bogason, forstjóri flugfélagsins, hefur verið stjórnarformaður ferðaskrifstofunnar um langt árabil.
Skrifstofur Vita voru í fyrra fluttar í höfuðstöðvar flugfélagsins við Reykjavíkurflugvöll. Og nú verður rekstur ferðaskrifstofunnar hluti af deild þar innanhúss sem kallast Icelandair Packages. Undir hana heyrir líka Icelandair Holidays, sem skipuleggur meðal annars Íslandsferðir fyrir útlendinga.
Vita var einmitt áður hluti af Iceland Travel sem hefur lengi verið umsvifamesta ferðaskrifstofa landsins þegar kemur að sölu ferðalögum um Íslands. Sú starfsemi var seld út úr Icelandair í fyrra og er nú undir hatti Travel Connect.
Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair þá tekur Andrés Jónsson, forstöðumaður Icelandair Packages, við hlutverki Þráins í rekstri Vita.