Play hóf fyrr í dag sölu á flugmiðum til Aþenu, höfuðborgar Grikklands. Flogið verður tvisvar í viku, á mánudögum og föstudögum, frá 2. júní og út október. Þetta verður í fyrsta sinn sem beint áætlunarflug á milli Íslands og Aþenu er á boðstólum en það tekur um sex klukkustundir að fljúga þessa leið.
Þotur Play munu leggja í hann til Grikklands klukkan sex að morgni og lendir þotan rétt fyrir kaffileytið á flugvellinum í Aþenu. Heimferðin er ekki á dagskrá fyrr en klukkan morguninn eftir. Áhafnir Play munu því dvelja úti yfir nóttina samkvæmt upplýsingum frá flugfélaginu.
Með þessu fyrirkomulagi getur Play boðið íbúum Aþenu upp tengiflug frá Keflavíkurflugvelli til Bandaríkjanna seinni part dags og Bandaríkjamenn á leið til Grikklands komast þangað eftir næturflug til Íslands frá austurströnd Bandaríkjanna.
Fyrirkomulagið er því annað en í ferðum Play til Lissabon og Portúgal því þar gefst Portúgölum ekki færi á einfaldri tengingu við Ameríkuflug Play.
Stærstu flugfélög Bandaríkjanna bjóða upp á flug Aþenu frá borgum eins og New York, Boston og Chicago. Þessi félög eru oftast með daglegar ferðir til grísku höfuðborgarinnar en sem fyrr segir lætur Play tvær í viku duga.