Samfélagsmiðlar

Boeing þarf að leggja fram ítarlegri gögn um öryggi Max-þotanna

Starfsmenn Boeing fögnuðu því fyrir þremur árum síðan að fyrsta eintakið af Max10 væri tilbúið. Ennþá fær flugvélaframleiðandinn þó ekki að afhenda þoturnar.

Í kjölfar tveggja flugslysa, þar sem 346 manns misstu lífið, voru allar Boeing Max þotur kyrrsettar í mars 2019. Þegar þarna var komið við sögu voru eingöngu Max8 og Max9 þotur komnar í loftið en Boeing var þó að leggja lokahönd á fyrstu eintökin af minni og stærri útgáfu af flugvélinni, Max7 og Max10.

Rúmum þremur árum síðar bíða flugfélögin sem keyptu þessar nýju týpur ennþá því bandarísk flugmálayfirvöld hafa ekki gefið samþykki sitt notkun vélanna. Og til að bæta gráu ofan á svart þá ganga í gildi nýja reglur um áramótin sem kveða á um að allar nýjar farþegaþotur, sem afhentar eru í Bandaríkjunum, skuli vera með öflugara viðvörunarkerfi í flugstjórnarklefanum en er í Max þotunum í dag.

Boeing er því í kapphlaupi við tímann enda ljóst að það mun reynast fyrirtækinu dýrt að uppfæra kerfin i samræmi við nýju reglurnar.

Forstjóri Boeing gaf það þó út fyrr í haust að hann ætti ekki von á því að Max10 þoturnar fengju grænt ljós fyrir áramót en sagðist vongóður um að Max7 kæmust í loftið.

Nú herma heimildir Wall Street Journal að bandarísk flugmálayfirvöld telji þau gögn sem Boeing hefur lagt fram um öryggisbúnað Max7 þotanna vera ófullnægjandi. Og þar með stefni í að ekki einu sinni þessi minnsta týpa af Max þotunni komist í loftið áður en hinar hertu öryggiskröfur ganga í gildi eftir rúma tvo mánuði.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …