Samfélagsmiðlar

Ferðamenn stoppa í styttri tíma en árið 2019

Ferðafólk við Ingólfstorg á aðventu.

Eitt af því sem einkenndi ganginn í ferðaþjónustunni eftir heimsfaraldur var hversu langan tíma fólk gaf sér í Íslandsreisuna. Gistinætur á hvern útlending urðu þá mun fleiri en þær höfðu verið og þessu fagnaði forsvarsfólk atvinnugreinarinnar og ráðamenn líka.

Í samanburði við 2018, þegar hingað komu flestir, var munurinn mikill en þá ber að hafa í huga að það ár einkenndist af dýrkeyptu kapphlaupi Icelandair og Wow Air. Framboð á ódýrum farmiðum var mikið og hingað streymdu til að mynda óvenju margir ferðamenn frá Bandaríkjunum.

Eftir fall Wow Air í mars árið 2019 fór dvalartíminn upp á við á ný og stökkið varð ennþá meira eftir að slakað var á sóttvarnaraðgerðum við landamærin í fyrra.

Sú þróun hefur haldið áfram í ár því gistinætur á hvern ferðamann hafa verið töluvert fleiri en þær voru árið 2019. Í sumar stoppaði hver túristi að meðaltali í rúmlega fimm nætur sem er alla vega einni nótt meira en fólk gaf sér í Íslandsferðina á árunum fyrir heimsfaraldur eins og sjá má hér fyrir neðan.

Nú í haust varð hins vegar breyting á þessu því þá styttist dvalartíminn umtalsvert og þessi þróun hefur haldið áfram og gistinætur á hvern ferðamann síðustu þrjá mánuði eru því færri en raunin var árið 2019 eins og sjá má á línuritinu.

Í þessum útreikningum Túrista er miðað við allar skráðar gistinætur útlendinga og svo talningu Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þessi gögn eru takmörkuð eins og þekkt er en þetta er það sem við höfum úr að moða. Og af tölunum að dæma þá virðist sem ferðamynstrið sé á ný farið að líkjast því sem var áður en Covid-19 setti ferðaþjónustu hér heima og erlendis á annan endann.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …