„Efling hefur gefið út að verkfallsverðir munu fara á hótelin á morgun,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela. Þar hefur starfsemi þegar raskast vegna verkfallsins sem hófst á hádegi. Þegar í ljós kom í hvað stefndi var hætt að bóka nýja gesti og aðrir voru færðir yfir á önnur hótel.
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2023/02/Lobbi-Foss-1066x800.jpeg)
Mega yfirmenn sinna störfum sem t.d. hótelþernur sinna að jafnaði?
„Varðandi það hverjir mega vinna þá förum við að lögum og reglum og njótum leiðsagnar Samtaka atvinnulífsins. Skilgreindir framkvæmdastjórar, eigendur og stjórnendur með mannaforráð mega ganga í störf annarra starfsmanna,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri, í svari við fyrirspurn Túrista síðdegis.
Verkfall um 400 starfsmanna Berjaya-hótelkeðjunnar og Edition-hótelsins hefst 15. febrúar.
![](http://ff7.is/wp-content/uploads/2023/02/Folk-ad-spjalla-a-Foss-1067x800.jpeg)