Samfélagsmiðlar

Sjötta hver nótt í heimagistingu

Ferðafólk á Akureyri en framboð á heimagistingu þar í bæ á vegum Airbnb er töluvert. Lausu rúmin eru þó miklu færri í sumar en þessa dagana.

Það eru vísbendingar um að komandi sumarvertíð hér á landi skili bandarísku gistimiðluninni Airbnb góðum tekjum. Laus gisting á vegum fyrirtækisins hér á landi í sumar er nefnilega töluvert minna en nú í vor en framboð á heimagistingu á landsvísu er í takt við það sem var fyrir heimsfaraldur.

Ennþá eru gistinætur útlendinga í heimagistingu þó færri en þá var en samkvæmt nýju mati Hagstofunnar voru þær engu að síður 92 þúsund talsins í mars sl. Það er aukning um 20 þúsund nætur frá sama tíma í fyrra.

Fjöldinn er þó ennþá töluvert frá því sem var í marsmánuði á árunum 2017 til 2019 eins og sjá má hér fyrir neðan.

Gistnætur útlendinga í svefnbílum voru um 2 þúsund í mars samkvæmt mati Hagstofunnar sem eru um helmingur af því sem var fyrir Covid-19.

Hlutdeild skráðrar gistingar, til að mynda hótela og gistihúsa, var um 84 prósent í mars sem er aðeins hærra hlutfall en á árum áður en sem fyrr segir stefnir í að ásókn í heimagistingu verði mikil hér á landi í sumar. Skrifast þá meðal annars á þá staðreynd að framboð á hótelrými hefur lítið breyst en búist er við álíka fjölda ferðamanna í sumar og metárin 2017 til 2019.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …