Hátt í 130 starfsmenn á verkstæðum Tesla bílaframleiðandans í Svíþjóð fóru í verkfall í morgun. Krefst fólkið hefðbundins kjarasamnings og þar með bætra lífeyrisréttinda og aukins starfsöryggis. Viðvera á verkstæðunum ætti einnig að minnka því formaður verkalýðsfélagsins IF Metall fullyrðir að starfsmenn Tesla vinna 8 dögum meira á ári hverju en fólk í sambærilegum störfum gerir.
Samkvæmt frétt SvD þá hafna stjórnendur bandaríska bílaframleiðandans öllum viðræðum við sænsk stéttarfélög. Vísa þeir til þess að hvergi í heiminum hafi Tesla gert almenna kjarasamninga og ekki sé ætlunin að gera breytingar á því.
Formaður IF Metall bendir hins vegar á að fyrirtæki sem starfi í Svíþjóð verði einfaldlega að fylgja þeim reglum sem gilda þar í landi. Kjarasamningar við starfsfólk séu hluti af leikreglunum.
Það þekkist í fleiri geirum að vinnuveitendur viðurkenni ekki rétt starfsfólks til að bindast samtökum. Það er til að mynda raunin hjá Wizz Air sem er umsvifamesta erlenda flugfélagið á Keflavíkurflugvelli.