Samfélagsmiðlar

Nýju flugfélögin fá meira fé

Undir lok heimsfaraldurs hófu þrjú norræn flugfélög starfsemi. Tvö í Noregi og eitt íslenskt. Nú hafa stjórnendur þeirra allra óskað eftir auknu hlutafé með stuttu millibili.

Áhöfn Norse fyrir framan eina af Boeing Dreamliner þotum félagsins.

Hlutabréf í norska flugfélaginu Norse féllu um þrjátíu prósent um leið og Kauphöllin í Ósló opnaði í morgun. Skýringin á þessu liggur í tilkynningu sem stjórnendur Norse sendu út eftir lokun markaða í gær en þar kom fram að hlutafé í félaginu hefði verið aukið um 300 milljónir norskra króna eða 4,3 milljarða íslenskra króna.

Þessi hlutafjáraukning er ekki í takt við fyrri yfirlýsingar Bjørn Tore Larsen,forstjóra og stofnanda félagsins, sem fyrir tveimur mánuðum síðan fullyrti að engin þörf væri fyrir meira fé.

Þeir fjárfestar sem tóku þátt í hlutafjáraukningu gærdagsins fengu verulegan afslátt því gengið í þeim viðskiptum var 2,5 norsk króna á hlut. Það er fjörutíu prósent lægra verð en bréfin í Norse voru seld fyrir á markaði í gær. Lækkun hlutabréfanna í morgun endurspeglar því þennan mikla afslátt sem gefin var í hlutafjárútboðinu í gær.

Norse er ekki eina norræna flugfélagið sem sótt hefur aukið fé til fjárfesta nú í byrjun vetrar. Hitt nýja norska flugfélagið, Flyr, þurfti einnig á innspýtingu að halda og fékk mun minna fé en þörf var á.

Og framundan er líka hlutafjáraukning hjá Play en stærstu hluthafar félagsins skuldbundu sig þann 3. nóvember til að leggja félaginu til 2,3 milljarða króna. Almennum fjárfestum býðst að kaupa hlutabréf fyrir 1 milljarð króna til viðbótar. Útboðsgengið er 14,6 krónur á hlut en í dag fást bréfin í Play fyrir mun minna eins og sjá má línuritinu hér fyrir neðan.

Þeir sem taka þátt í útboðinu fá því ekki sambærilegan afslátt við það sem Norse bauð sínum hluthöfum. En reyndar fylgja áskriftarréttindi bréfunum í Play sem nýtanleg verða í ársbyrjun 2024.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …