Um leið og kauphöllin í Ósló opnaði á fimmtudagsmorgun reyndi fjöldi fjárfesta að selja bréfin sem þeir höfðu fengið í nýafstöðnu hlutafjárútboði félagsins. Samtals var sýslað með 1,5 milljarð hluta fyrir klukkan tíu þrátt fyrir að þá hafi fjöldi útgefinna hlutabréfa aðeins verið 633 milljónir.
Það var nefnilega fyrst klukkan 10:01 sem Flyr tilkynnti að hlutabréfin sem gefin voru út í hlutafjárútboði vikunnar hefðu verið skráð í kauphöllina. Þar með bættust við 25 milljarðar hluta og það voru þessi bréf sem fjárfestar kepptust við að losa sig við þrátt fyrir að vera ekki ennþá orðnir skráðir eigendur
Svona viðskipti eru bönnuð og samkvæmt frétt Dagens Næringsliv þá fóru þessir örvæntingafullu fjárfestar ekki í gegnum norska verðbréfamiðlara heldur erlenda. Norsku reglurnar eiga þó líka við um þá og nú er að sjá hvort fjármálaeftirlitið í Noregi blandi sér í málið eða ekki.
Í takt við þessa stórfelldu sölu á hlutabréfum í Flyr þá hrapaði gengið um sextíu prósent á fimmtudag og fór niður fyrir útboðsgengið, 1 eyri á hlut. Samtals hefur gengið fallið um 99,7 prósent frá því að Flyr var skráð á markað þann 1. mars í fyrra.
Hlutafjárúboð vikunnar skilaði Flyr samt 250 milljónum norskra króna eða um 3,5 milljarð íslenskra króna. Það er þó ekkert leyndarmál að félagið þarf meira fé í síðasta lagi í lok vetrar því upphaflega var ætlunin að safna 430 milljónum norskra króna í hlutafjárútboði nú í vetrarbyrjun. Það gekk ekki eftir og því var markið lækkað niður í fyrrnefndar 250 milljónir.
Flyr leiddi skiljanlega lækkanir vikunnar í hópi skráðra norrænna flugfélaga en bréf þeirra allra lækkuðu í vikunni ef Icelandair er frátalið eins og sjá má hér fyrir neðan. Markaðsvirði flugfélaganna sjö er í dag 376 milljarðrar króna en til samanburðar er virði Marel í dag 404 milljarðar kr.