Það var í október sem Skarphéðinn Berg Steinarsson gaf út að hann ætlaði láta staðar numið sem ferðamálastjóri nú um áramótin. Í kjölfarið var embættið auglýst og rann umsóknarfresturinn út um miðjan nóvember. Alls bárust fjórtán umsóknir en ein þeirra var dregin tilbaka.
Sérstök hæfnisnefnd tók til starfa í byrjun desember og gert er ráð fyrir að nefndin skili tillögum sínum til Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra, í síðasta lagi á morgun, miðvikudag. Í kjölfarið mun ráðherra eiga ráðningarviðtöl við þá umsækjendur sem koma til greina samkvæmt upplýsingum frá stjórnarráðinu.