Samfélagsmiðlar

Icelandair sex sinnum verðmætara en Play

Gengi hlutabréfa í íslensku flugfélögunum hækkaði í vikunni og það var líka raunin hjá Finnair, Norwegian og SAS.

Það eru sjö norrænu flugfélög skráð á hlutabréfamarkað og nú í lok fyrstu viku ársins er samanlagt virði hlutabréfa í félögunum 334 milljarðar króna. Icelandair og Play standa undir nærri fjórðungi upphæðarinnar eða 81 milljarði króna.

Markaðsvirði Icelandair er 69,3 milljarðar á meðan hlutabréfin í Play eru 11,7 milljarða króna virði. Munurinn er sexfaldur en til samanburðar er Norwegian metið á 104,3 milljarða króna og er því verðmætasta norræna flugfélagið. Þar á eftir kemur Finnair og svo Icelandair.

SAS er í fjórða sæti en hlutabréfin í því félagi kosta í dag nærri 50 milljarða króna þrátt fyrir að vera nærri verðlaus því það er yfirlýst markmið stjórnenda flugfélagsins að efna til hlutafjárútboðs síðar á árinu og þá fá núverandi hlutahafar lítið fyrir bréfin sín.

Í neðstu þremur sætunum, á listanum yfir verðmætustu norrænu flugfélögin, er flugfélögin sem fóru í loftið í heimsfaraldarinum. Og sem fyrr eru bréfin í Play mun meira virði en hlutirnir í Norse og Flyr en þessi þrjú hafa öll sótt aukið fé til fjárfesta að undanförnu. Í þeirri aðgerð þurftu norsku flugfélögin að selja nýju bréfin með töluverðum afslætti en þess þurfti ekki hjá hjá Play. Tuttugu stærstu hluthafarnir skuldbundu sig nefnilega til að leggja félaginu til 2,3 milljarða króna á nærri sama verði og bauðst í kauphöllinni.

Lífeyrissjóðurinn Birta og Íslandsjóðir voru meðal þeirra sem nýttu útboðið til að auka hlut sinn í flugfélaginu.

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …