Samfélagsmiðlar

Ítalska stjórnin vill fækka rafskútum

Tíð slys á rafskútufólki og óþægindin sem þessi farartæki valda gangandi vegfarendum hafa orðið til þess að ítalska ríkisstjórnin vill setja töluverðar hömlur á þessi farartæki. Þau verða skráningarskyld, eigendur þurfa að greiða tryggingu og ökumenn bera hjálm.

Rafskútur í Róm

Greint var í gær frá tillögum ítölsku ríkisstjórnarinnar um víðtækar aðgerðir til að fækka rafskútum á götum borga í landinu. Markmiðið er að fækka slysum og fjarlægja hindranir á gangstéttum, þar sem rafskútur liggja gjarnan.

Rafskúta á gangstétt í Róm – MYND: ÓJ

Um leið ætlar ítalska ríkisstjórnin að gera þær breytingar á umferðarlögum að ökumenn sem staðnir eru að því að tala í síma á meðan þeir eru undir stýri missa ökuleyfið og tekið verður af meiri hörku á brotum þeirra sem aka undir áhrifum áfengis eða eiturlyfja.

Rafskútur eru mjög algeng sjón í ítölskum borgum eins og annars staðar. Leigufyrirtæki hafa sprottið upp og langar raðir af þessum farartækjum eru við gagnstéttir og á torgum. Mikið hefur verið um slys á fólki. Á síðustu tveimur árum hafa sex manns látist við akstur á rafskútum og mikið hefur verið um að gangandi vegfarendur hafi orðið fyrir margskonar óþægindum og meiðslum. Þá hefur ekki tekist að fylgja neinum reglum um hvar farartækjunum er lagt.

Rafskútur eru út um allt – MYND: ÓJ

Ítalska ríkisstjórnin vill að allir sem aka rafskútum beri hjálm á höfði, þeir séu tryggðir og ökutækið beri skráningarnúmer. Akstur þeirra verður bannaður á uppbyggðum vegum og hraðbrautum – og bannað að leggja þeim á gagnstéttum.

Þingið þarf að staðfesta þessar reglur áður en þær taka gildi.

Í apríl síðastliðinn samþykktu Parísarbúar bann við rafskútum í atkvæðagreiðslu.

Ferðafólk og rafskútur – MYND: ÓJ

Nýtt efni

Í fyrra batnaði lausafjárstaða Play um nærri helming frá lokum fyrsta ársfjórðungs og fram í lok júní þegar annar fjórðungurinn var að baki. Hækkunin nam 17 milljónum dollara. Nú í ár hækkaði sjóðsstaðan um 34 milljónir dollara á milli ársfjórðunga en þar af mátti rekja 32 milljónir dollara til hlutafjáraukningarinnar í apríl. Reksturinn sjálfur skilaði …

„Við ætlum að hætta ákalli um að fólk heimsæki okkur en leggja í staðinn áherslu á hvað Barselóna hefur að bjóða,“ sagði Mateu Hernández, ferðamálastjóri Barselóna, á fréttamannafundi í vikunni. Þar voru kynnt áform um róttæka breytingu á því hvernig borgin verður kynnt umheiminum. Slagorðinu Heimsækið Barselóna (Visit Barcelona), sem notað hefur verið síðustu 15 árin, …

Skemmdarvargar gerðu samræmdar árásir á hraðlestakerfi Frakklands í nótt með eldum sem kveiktir voru á nokkrum helstu leiðum í átt að París, þar sem Ólympíuleikarnir verða settir í dag.  Íþróttamálaráðherra Frakklands, Amélie Oudéa-Castéra, fordæmdi spellvirkin sem eiga eftir að valda truflunum á lestarferðum fólks næstu daga á meðan verið er að hreinsa brautarteina og laga …

Play flutti 442 þúsund farþega á öðrum ársfjórðungi, apríl til júní, sem er viðbót um 13 prósent frá sama tíma í fyrra. Framboð félagsins jókst álíka mikið eða um 12 prósent enda var sætanýtingin betri í ár. Sú bæting skrifast að hluta til á lægra farmiðaverð því einingatekjur félagsins lækkuðu um 4 prósent og meðalfargjaldið …

Ný ríkisstjórn í Bretlandi kynnti í síðustu viku áætlun sína um að tryggja ákveðið lágmarksverð fyrir sjálfbært þotueldsneyti (SAF) til að hvetja framleiðendur til dáða - auka vinnsluna og byggja upp nauðsynlega innviði til dreifingar. Ekki veitir af hvatningu því innleiðingu SAF miðar mjög hægt. Vissulega menga nýjar þotur miklu minna en þær eldri en …

Vaxandi óánægju gætir meðal leigusala og húsnæðismiðlara í Bandaríkjunum með það ægivald sem Airbnb hefur á skammtímaleigumarkaðnum. Margir eru sagðir leita leiða til að afla leigutekna utan eða meðfram kerfi bandaríska risans, sem gerir stöðugt meiri kröfur til þeirra sem leigja út vegna þrýstings frá samfélögum sem stynja undan umfangi og markaðsáhrifum skammtímaleigu til ferðafólks.  …

Flugsamstæðan Air France KLM hefur greint frá því að rekstrarhagnaður á síðasta ársfjórðungi hafi minnkað um 30% og er það verri afkoma en flugmálasérfræðingar bjuggust við. Helstu skýringar eru sagðar aukinn starfskostnaður og hærra olíuverð en búist var við. Þetta er veruleiki sem önnur flugfélög hafa almennt verið að kljást við. Á öðrum ársfjórðungi nam …

Þegar stjórnendur Play kynntu í apríl sl. uppgjör fyrirtækisins fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins þá brugðu þeir út af vananum og birtu engan árshlutareikning. Þar með fengu fjárfestar og greinendur ekki aðgang að uppfærðum efnahagsreikningi fyrir flugfélagið þar sem meðal annars eigna- og skuldastaða kemur fram. Um leið fengust ekki upplýsingar um hvert eiginfjárhlutfall félagsins …