Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir“ þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar.
Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra þegar íslensku gistinæturnar voru 2.382.
Allt árið í fyrra fækkaði gistinóttum Íslendinga á hótelum í Berlín um átta prósent og voru þær þá 36.578. Miðað við ásóknina í Berlínarferðir í janúar og febrúar þá gæti talan orðið nokkru hærri á þessu ári.
Icelandair og Play halda úti tíðum ferðum til Berlínar en ekkert þýskt flugfélag flýgur þaðan til Íslands.