Samfélagsmiðlar

Hvað kostar að fljúga til New York í sumar?

Það eru þrjú flugfélög sem stefna á að bjóða upp á tíðar ferðir milli Íslands og New York í sumar. Hér má sjá hvað farmiðarnir kosta og líka ef ferðinni er heitið til Boston eða Washington. Til þessara tveggja borga verður Icelandair þó eitt um ferðirnar.

Það er ennþá óljóst hvenær farþegaflug milli Norður-Ameríku og Evrópu verður á ný með hefðbundnum hætti. Reglulegar ferðir milli Íslands og New York eru þó ennþá á dagskrá Icelandair og bandarísku flugfélaganna Delta og United.

Þetta er aðeins ein af þremur flugleiðum sem Icelandair verður í samkeppni við tvo flugfélög eða fleiri. Og samkvæmt verðkönnun Túrista þá eru fargjöldin hærri hjá Icelandair en hinum tveimur í júní og júlí en þó ekki í ágúst.

Túristi kannaði fargjöld félaganna þriggja til New York frá Keflavíkurflugvelli dagana 14. til 20. júní og sömu dagsetningar í júlí og ágúst. Í öllum tilvikum er horft til ódýrustu fargjaldanna þar sem farþegar borga fyrir innritaðan farangur.

Eins og sjá má þá er býður United lægsta verðið í júní og júlí en Icelandair er ódýrasti kosturinn í ágúst.

Icelandair fær enga samkeppni í flugi til Boston og Washington í sumar en flugtíminn til þessara tveggja borga er álíka langur og til New York. Eins og sjá má þá gerir Icelandair sér vonir um hærra farmiða á þessu flugleiðum í sumar en til New York.

Sem fyrr segir er ennþá óljóst hvort og hvenær almennt flug hefst til Bandaríkjanna á ný. Sala á farmiðum er því væntanlega lítil og það hefur sín áhrif á fargjöldin.

Nýtt efni
MYND: ÓJ

Í fyrra flugu 2,2 milljónir ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli og ný hagspá Landsbankans gerir ráð fyrir 2,3 milljónum ferðamanna í ár og þeim fjölgi svo um 100 þúsund á næsta ári og aftur á því þarnæsta. Spá Ferðamálastofu er í nærri sama takti því samkvæmt henni verða ferðamennirnir í ár 2,4 milljónir í ár og 2,6 …

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …