Sala á hreinum rafbílum frá þýska bílaframleiðandanum BMW jókst um 41 prósent á fyrsta fjórðungi ársins. Með söluaukningunni er vægi rafbíla hjá BMW, sem einnig framleiðir Mini, komið upp í 20 prósent hjá þýska framleiðandnum en hlufallið var 15 prósent fyrir ári síðan samkvæmt frétt Bloomberg.
Á sama tíma hefur orðið samdráttur í sölu á þess háttar ökutækjum hjá hinum þýskum risunum, Mercedes-Benz og Volkswagen. Sérstaklega dró úr eftirspurn á kínverska markaðnum hjá þessum tveimur.
Sala á rafbílum frá Mercedes-Benz fór niður um 8 prósent fyrstu þrjá mánuði ársins og 3 prósent hjá Volkswagen.
Á þessu ári hafa 35 nýir fólksbílar frá BMW verið skráðir hér á landi samkvæmt tölum Samgöngustofu og þar af tæpur helmingur bílar sem eingöngu ganga fyrir rafmagni.