Samfélagsmiðlar

Framlengja samstarfið við JetBlue

Áfram geta farþegar Icelandair keypt tengiflug með JetBlue innan Norður- og Suður-Ameríku.

Airbus þotur JetBlue.

Icelandair hefur endurnýjað samning við bandaríska flugfélagið JetBlue um sammerkt flug félaganna. Í tilkynningu kemur fram að um sé að ræða samstarfssamning sem feli það í sér að bæði flugfélögin geta selt og gefið út flugmiða hvort hjá öðru. „Þannig geta viðskiptavinir Icelandair keypt einn farseðil frá Íslandi til fjölda áfangastaða JetBlue í Bandaríkjunum, karabíska hafinu, Mið- og Suður-Ameríku. Að sama skapi munu viðskiptavinir JetBlue geta keypt miða til Íslands og fjölda áfangastaða Icelandair í Evrópu,“ segir í tilkynningu.

Samningur Icelandair og JetBlue, sem fyrst tók gildi árið 2011, hefur nú verið endurnýjaður til ársins 2024. Þá hafa viðskiptavinir félaganna frá árinu 2017 átt þess kost að safna vildarpunktum hjá báðum félögum.

„Samstarfið við JetBlue er liður í því að bjóða fjölbreyttari þjónustu og auka þægindi fyrir viðskiptavini okkar. Með því að tengja leiðakerfin okkar saman getum við boðið viðskiptavinum okkar aukna valmöguleika þegar kemur að tengingum í Bandaríkjunum, karabíska hafinu, sem og Mið- og Suður-Ameríku. Á móti geta viðskiptavinir JetBlue nýtt sér tengingar Icelandair til Íslands og áfangastaða okkar í Evrópu með einföldum hætti,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Í tilkynningu er jafnframt haft eftir Robin Hayes, forstjóri JetBlue, að samstarfið við Icelandair styrki leiðakerfi félaganna beggja vegna Atlantshafsins og bætir aðgengi viðskiptavina JetBlue að Íslandi og öðrum áfangastöðum í Evrópu. „Með framúrskarandi þjónustu og hagstæðum fargjöldum, mun samstarf okkar áfram stuðla að aukinni eftirspurn eftir flugi yfir Norður-Atlantshafið í aðdraganda að áætluðu flugi JetBlue á þessum markaði 2021.” En JetBlue hefur boðað Evrópuflug á næsta ári en ekki liggur fyrir til hvaða evrópsku borga flugfélagið mun fljúga frá starfsstöðvum sínum í Boston og New York.

Þess má geta að Ben Baldanza, fyrrum stjórnarmaður WOW air, situr í stjórn JetBlue.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …