Samfélagsmiðlar

Gera ráð fyrir að kaupa um 600 bílaleigubíla

Hátt hlutafall ferðamanna hér á landi ferðast um á bílaleigubíl. Nú er að sjá hvort það hlutfall hækki eftir heimsfaraldurinn.

„Þetta starfsfólk er lykilfólk hjá okkur, mjög öflugur hópur sem er með mikla starfsreynslu. Meðal starfsaldur hjá okkur er nú um sjö ár,“ segir Sigfús Bjarni Sigfússon, forstjóri Hertz. En í dag greindi Morgunblaðið frá því að bílaleigan hefði endurráðið 66 starfsmenn. Alls starfa á áttunda tug starfsfólks hjá fyrirtækinu, en nær öllum var sagt upp í kjölfar faraldursins.

Spurður hversu margir vinna á starfsstöð Hertz við Keflavíkurflugvöll, þá segir Sigfús, í svari til Túrista, að það sé náttúrulega lítið að gera við flugvöllinn en starfsmennirnir þar eru fjórtán talsins.

„Við erum duglegir við að nýta þá á starfsstöð okkar í Reykjavík og Selhellu í Hafnarfirði þar sem bílasalan fer fram og þjónusta við viðskiptavini sem eru með langtímaleigu,“ bætir Sigfús við.

Hann segir Hertz vera farið að huga að bílakaupum en erfitt sé að spá fyrir um næsta ár. „Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir kaupum á um 800 bílum, en nú erum við að hugsa um 600 bíla,“ segir Sigfús en segir að sú tala geti hækkað eða lækkað um 100 til 200 bíla.

Forstjóri Hertz spyr sig, í þessu samhengi, hvort það komi ferðamenn frá Norður-Ameríku hingað til lands í sumar? Vægi bandarískra ferðamanna hefur nefnilega verið mjög hátt hér á landi og sumarið 2019 var það 28 prósent. Sigfús segir að hlutdeild viðskiptavina frá Norður-Ameríku hafi verið um 30 prósent hjá Hertz.

Ferðamaður sem bókar í dag bíl af minnstu gerð hjá Hertz fyrir seinni tvær vikurnar í júlí þarf að borga 158 þúsund krónur fyrir leiguna. Spurður um væntingar til verðlags í sumar þá segir Sigfús að verðið ráðist oftast af framboði og eftirspurn en hann geri þó ráð fyrir að það verði á svipuðu róli og það er í dag.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …