Samfélagsmiðlar

Kemur í ljós hversu mörg hótel verða opin í sumar

Íslandshótelin reka meðal annars Fosshótel í Reykjavík en það er stærsta hótel landsins.

Íslandshótelin eru stærsta hótelfyrirtæki landsins og þar er unnið eftir ólíkum sviðmyndum eftir því hvernig heimsfaraldurinn þróast. Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri, segist þokkalega bjartsýn á komur erlendra ferðamanna þegar líður á haustið en segir ómögulegt að ráða í hvenær allt fer í gang á ný.

„Af sautján hótelum voru bara níu opin þegar mest var síðstliðið sumar. Við erum að opna hótelin eitt af öðru frá febrúar næstkomandi en hvort við verðum með tíu hótel opin í sumar eða fleiri verður að koma í ljós. Þetta ræðst auðvitað allt af eftirspurn og ómögulegt að ráða í hvenær allt fer í gang,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótelanna.

Hann segir að hjá fyrirtækinu sé unnið eftir sviðsmyndum og það velti á framvindu Covid-19 hvaða sviðsmynd er dregin fram á hverjum tíma.

„Við erum þokkalega bjartsýn á að það fari að rofa til þegar líður að hausti hvað erlenda ferðamenn varðar. Svo lengi sem ekki komi bakslag í bólusetningar og svo framvegis,“ bætir Davíð við.

Gistinóttum útlendinga á íslenskum hótelum fækkaði um 92 prósent á tímabilinu apríl til nóvember í ár. Til samanburðar nam samdrátturinn í Noregi 85 prósentum. Þar í landi er vægi heimamanna líka umtalsvert og þannig stóðu Norðmenn sjálfir undir 72 prósent gistinátta á norskum hótelum árið 2019. Vægi Bandaríkjamanna var fjögur prósent og Kínverjar tvö prósent.

Hér heima stóðu bandarískir túristar undir rúmlega fjórðu hverri gistinótt á hótelum og þeir kínversku undir sjö af hverjum hundrað. Vægi íslenskra gesta var rétt um tíund.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …