Samfélagsmiðlar

Ekki sjálfgefið að vera með höfuðstöðvar á Íslandi

Í ræðu á aðalfundi Icelandair í gær sagði forstjórinn að íslenskt flugfélag þyrfti ekki að vera með höfuðstöðvar hér á landi. Flutningur hefur ekki verið ræddur við stjórnarborðið.

Síðastliðið haust var tekin skóflustunga að nýjum aðalskrifstofum Icelandair við Flugvelli í Hafnarfirði en höfuðstöðvar félagsins hafa verið í Vatnsmýrinni frá miðjum sjöunda áratug síðustu aldar.

Fyrir fjórum árum var Icelandair að öllu leyti í eigu Íslendinga og sjö af tíu stærstu hluthöfunum voru íslenskir lífeyrissjóðir. Í dag eiga bandarískir fjárfestingasjóðir um 27 prósent hlut í Icelandair og af þeim fimm sem sitja í stjórn flugfélagsins búa fjögur í Bandaríkjunum.

Það hafa því orðið töluverðar breytingar á eignarhaldi og yfirstjórn flugfélagsins síðastliðin ár. Í ræðu sinni á aðalfundi Icelandair í gær vakti Bogi Nils Bogason, forstjóri, sérstaklega máls á því að ekki mætti ganga að því vísu að höfuðstöðvar félagsins væru á Íslandi.

„Kjarninn í viðskiptalíkani Icelandair er leiðakerfið sem við höfum byggt upp á undanförnum áratugum. Í því höfum við nýtt einstaka staðsetningu Íslands í miðju Atlantshafinu til að byggja upp öfluga tengimiðstöð milli Evrópu og Norður Ameríku. Í því samhengi hefur Ísland, bæði land og þjóð, mikla þýðingu fyrir okkur. Við erum íslenskt félag og með þá stefnu að halda merkjum Íslands á lofti um allan heim og á sama tíma hafa góð áhrif á íslenskt samfélag og efnahag,“ sagði Bogi Nils.

„Að reka íslenskt flugfélag með höfuðstöðvar á Íslandi er þó ekki sjálfgefið,“ bætti hann við.

Með þessum orðum er forstjórinn þó ekki að boða flutning Icelandair úr landi. Þegar Bogi Nils var spurður hvort það hafi verið rætt í stjórn flugfélagsins að flytja höfuðstöðvarnar til útlanda sagði hann í svari til Túrista að það hafi aldrei komið til tals að flytja höfuðstöðvarnar.

„Ég á alls ekki von á því að það muni koma upp á stjórnarfundi. Það sem ég var að vísa í er að það er dýrt að reka flugfélag á Íslandi. Við verðum alltaf lítil miðað við stóru flugfélögin, Ísland er dýrt land. Við verðum að fókusera á kostnaðinn eins og við getum en sterkt tekjumódel er grundvöllurinn að rekstri flugfélags á Íslandi og þar hefur Icelandair náð góðum árangri og byggt upp mjög sterka innviði til margra ára. Það skiptir líka miklu máli að vera með réttu vöruna miðað við kostnaðinn og umhverfið sem við erum að vinna í,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Nýtt efni

Næstum allir þeir útlendingar sem hér dvelja stuttan tíma eru í fríi því aðeins 2,4 prósent segjast vera í vinnuferð. Þetta sýna niðurstöður könnunar Ferðamálastofu sem framkvæmd var í fyrra. Árið 2019 sögðust 2,9 prósent ferðamanna hafi komið til landsins til að sitja ráðstefnu, fara á vinnufundi eða gera annað sem flokka mætti sem vinnu …

„Það vantar fleiri loftslagsaktívista,“ segir Finnur Ricart Andrason forseti Ungra umhverfissinna. Ungir umhverfissinnar gáfu á dögunum út Handbók loftslagsaktívista, sneysafulla af fróðleik um loftslagsmál. Handbókin er rafræn og aðgengileg á netinu og er yfirlit yfir verkefnin sem blasa við í loftslagsmálum.er yfirlit yfir verkefnin sem blasa við í loftslagsmálum, og hvað þarf að gera til þess að …

Starfsfólk Lufthansa samsteypunnar lagði niður störf með jöfnu millibili í ársbyrjun og kostuðu aðgerðirnar vinnuveitandann 350 milljónir evra eða um 53 milljarða íslenskra króna. Þetta mat kemur fram í nýju uppgjöri þýsku samsteypunnar sem kynnt var í tengslum við uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung. Þar var tapið 110 milljarðar króna sem er ríflega helmingi meira tap …

Ef einhver hefur dreypt á kampavíni og hugsað sem svo: „Ég myndi njóta þess miklu betur að drekka þetta ef ég vissi nákvæmlega hvað það væru margar loftbólur í þessu glasi“ þá er leitinni hér með lokið. Nýlega hafa vísindamenn sýnt fram á að hægt er að segja nokkuð nákvæmlega til um fjölda búbbla í …

Það var í byrjun október árið 2018 sem flugfélagið Primera Air varð gjaldþrota en það var í eigu Primera Travel Group sem Andri Már Ingólfsson átti. Stuttu eftir gjaldþrotið var eignarhald á nokkrum norrænum ferðaskrifstofum, sem tilheyrðu íslensku samsteypunni, fært yfir í danskt félag, Travelco Nordic. Það var einnig í eigu Andri Más. Íslensku ferðaskrifstofurnar …

Nýjar og strangari reglur Evrópusambandsins um hinn stafræna markað tók gildi í fyrra en tilgangur þeirra er að veita tæknirisum og vinsælum samfélagsmiðlum aðhald. Á grundvelli þessara nýju reglna hefur framkvæmdastjórn ESB nú þegar hafið rannsókn á ákveðnum starfsháttum Apple, Meta og Google og fyrr í dag var tilkynnt um viðbót þar á. Nú beinast …

Útlendingar bókuðu 1 prósent fleiri nætur á íslenskum gististöðum í síðastliðnum mars og þeir gerðu á sama tíma í fyrra samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Aftur á móti fjölgaði erlendum brottfararfarþegum um nærri 8 prósent samkvæmt talningum Ferðamálastofu. Þar með fór meðaldvölin úr 3,2 nóttum niður í þrjár en hafa ber í huga að vísbendingar eru …

Það sem af er ári hafa 117 nýir bílar frá Tesla komið á götuna hér á landi en fyrstu fjóra mánuðina í fyrra voru þeir 660 samkvæmt Samgöngustofu. Samdrátturinn nemur 82 prósentum en til samanburðar hefur nýskráðum rafbílum hér á landi fækkað um 74 prósent á milli ára. Af þessum 117 nýju Tesla bílum hér …