Samfélagsmiðlar

Stundvísitölur: Á áætlun þrátt fyrir annríki

klukka

Það komast nær allir til og frá landinu á réttum tíma þessa dagana eins og nýjustu stundvísitölur Túrista sýna .

Það þurfa fáir ferðalangar að drepa tímann á Keflavíkurflugvelli þessar vikurnar. Rúmlega níu af hverjum tíu brottförum héldu áætlun á fyrri hluta mánaðarins og komutímar standast líka nær alltaf eins og sjá má á töflunni hér neðar á síðunni.

Umferðin í hámarki

Júlí er háannatími í millilandaflugi og það er því ánægjulegt að stundvísin á Keflavíkurflugvelli er góð þrátt fyrir mikla traffík. Icelandair fór til dæmis nærri því 900 ferðir til og frá landinu síðustu tvær vikur og voru 90 prósent þeirra á réttum tíma. Tafirnar í mínútum talið voru fáar.

Iceland Express flaug tæplega 160 sinnum, eða tvöfalt oftar en WOW air, og hélt áætlun félagsins í 94 prósent tilvika. Hjá WOW air var hlutfallið hæst eða 96 prósent.

Stundvísitölur Túrista, 1. til 15. júlí (í sviga eru niðurstöður seinni hluta júní).

1. – 15. júlí.

Hlutfall brottfara á tímaMeðalseinkun brottfaraHlutfall koma á tíma
Meðalseinkun komaHlutfall ferða á tíma
Meðalbið alls
Icelandair92% (91%)3 mín (2 mín)88% (80%)3 mín (4 mín)90% (85%)3 mín (3 mín)
Iceland Express96% (95%)3 mín (8 mín)91% (87%)12 mín (6 mín)94% (91%)

8 mín (7 mín)

WOW air95% (95%)0,5 mín (1 mín)98% (98%)1 min (0 mín)96% (96%)1 mín (0,5 mín)

Um útreikningana: Daglega reiknar Túristi út hversu mikill munur er á áætluðum komu- og brottfaratímum og þeim tímasetningum sem gefnar eru upp fyrir lendingar og flugtak á heimasíðu Keflavíkurflugvallar. Þar sem seinkun um korter telst vera innan skekkjumarka í fluggeiranum þá eru fimmtán mínútur dregnar frá öllum seinkunum. Flug sem tefjast um minna en stundarfjórðung teljast vera á áætlun.

Fylgstu með Túrista á Facebook

NÝJAR GREINAR: Á heimavelli: Greta Mjöll í BostonBæjarins bestu í Washington
TENGDAR GREINAR: Sjötta besta í Evrópu –  Snjallsímavæðing í fluggeiranum

Mynd: Gilderic/Creative Commons

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …