Samfélagsmiðlar

Hætta aftur við Berlín

Í maí tilkynnti Iceland Express að félagið ætlaði að fljúga allt árið til Berlínar. Úr því verður hins vegar ekki.

Iceland Express ætlaði sér stóra hluti á Þýskalandsmarkaði í vetur. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu í vor segir að flogið verði allt árið um kring til Berlínar og stefnt væri að því að fjölga umtalsvert komum þýskra ferðamanna hingað til lands á veturna. Þetta var markmiðið þó félagið hafi fellt niður flug til Berlínar síðasta vetur.

Svo virðist sem átak Iceland Express í Þýskalandi í sumar hafi ekki skilað árangri því aftur ætlar félagið að hætta við flug til Berlínar yfir vetrarmánuðina. Ferðirnar leggjast því af í lok október og hefjast að nýju í vor.

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, segir í samtali við Túrista að eftirspurnin hér heima og í Þýskalandi hafi ekki staðið undir væntingum. Markaðurinn er ekki til staðar að hans sögn.

WOW air situr eitt að Berlín

Túristi sagði frá því í morgun að WOW air hyggðist draga saman seglin næstu mánuði. Félagið ætlar sér samt sem áður að fljúga tvær ferðir á viku til Berlínar í allan vetur. Forsvarsmenn WOW air sjá því greinilega tækifæri í höfuðborg Þýskalands sem Iceland Express hefur ekki getað nýtt sér.

Fylgstu með Túrista á Facebook

TILBOÐ Á GISTINGU Í BERLÍN FYRIR LESENDUR TÚRISTA: 5% afsláttur á íbúðahóteli
NÝJAR GREINAR: Verðkönnun á flugvélamat

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …