Samfélagsmiðlar

23 sóttu um stöðu ferðamálastjóra

Einstaklingar með ýmis konar reynslu af ferðaþjónustu hafa áhuga á að taka við embætti ferðamálastjóra.

Um áramót hefst skipunartími nýs ferðamálastjóra en Ólöf Ýrr Atladóttir, sem gegnt hefur embættinu síðastliðinn áratug, hafði áður gefið út að hún myndi ekki sækja um stöðuna á ný. Þegar Ólöf Ýrr var ráðin sóttu 50 manns um starfið en núna voru umsækjendurnir 23 talsins en umsóknarfrestur rann út um mánaðarmótin. Gerð var krafa um meistarapróf að þessu sinni kann það að vera ein skýringin á því að umsækjendur eru færri nú en þegar staðan var síðast auglýst í lok árs 2007.

Meðal þeirra sem sóttu um embætti ferðamálastjóra er fólk sem sinnt hefur ferðaþjónustu á opinberum vettvangi en líka einstaklingar sem hafa verið í forsvari fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Það er ráðherra ferðamála sem skipar í stöðuna og segir Ólafur Teitur Guðnason, aðstoðarmaður ráðherra, að ráðningin hafi sinn gang samkvæmt lögum og henni verði hvorki flýtt né seinkað vegna stjórnarskipta.

Þau sem sóttu um embætti ferðamálastjóra:

Aldís Guðný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri

Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri

Áshildur Bragadóttir, forstöðumaður

Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi

Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri

Eva Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri

Finnur Gunnþórsson, fyrirtækjaráðgjafi

Dr. Gunnþóra Ólafsdóttir, mannvistarlandfræðingur

Gústaf Adolf Skúlason, stjórnmálafræðingur

Halldór Halldórsson, viðskiptafræðingur

Heimir Jónasson, framkvæmdastjóri

Hermann Ottósson, framkvæmdastjóri

Hrafnhildur Þórisdóttir, ferðamálafræðingur

Kristín Helga Birgisdóttir, hagfræðingur

Ólína K. Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur

Rósbjörg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri

Sigurjón Þórðarson, stjórnunarráðgjafi

Skarphéðinn Berg Steinarsson, viðskiptafræðingur

Steinar Frímannsson, leiðsögumaður

Valdimar Björnsson, fjármálastjóri

Þorsteinn Þorsteinsson, framkvæmdastjóri

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, rekstrarhagfræðingur

Þuríður Halldóra Aradóttir Braun, forstöðumaður

 

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …