Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, hefur óskað eftir því að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis taki mál sem varða endurkomu MAX flugvéla Boeing til umfjöllunar. Hanna Katrín á sæti í nefndinni.
Í færslu á Facebook vísar Hanna Katrín til þess að síðustu daga hafi fjölmiðlar víða um heim opinberað samskipti milli háttsettra starfsmanna Boeing þar sem fram kemur áhersla þeirra á að flugmenn MAX þotanna eigi ekki að þurfa sérstaka þjálfun ef þeir hafa réttindi á eldri gerðir af Boeing 737. Flugvélaframleiðandinn lét reyndar af þeirri stefnu nú í vikunni þegar forstjóri fyrirtækisins tilkynnti að skilyrði verði sett um að allir flugmenn fái þjálfun i flughermi.
Icelandair hafði tekið sex þotur af gerðinni Boeing MAX 737 í notkun en áður þoturnar voru kyrrsettar um miðjan mars í fyrra. Auk þess voru þrjár í viðbót tilbúnar til afhendingar en þær bíða enn við verksmiðjur Boeing í Seattle.
Í færslu sinni á Facebook segir Hanna Katrín að hún óski eftir því að Isavia, Samgöngustofa og Icelandair mæti á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis við fyrsta tækifæri og veiti upplýsingar um hvernig þessir aðilar fylgjast með ferlinu í tengslum við afnám kyrrsetningar MAX þotanna.