Þotur Icelandair ættu að fljúga sextíu og níu sinnum frá Íslandi í þessari viku samkvæmt tímabundinni flugáætlun félagsins. Í eðlilegu árferði hefðu ferðirnar verið miklu fleiri.
Þrátt fyrir samdráttinn þá stenst þessi uppfærða flugáætlun sjaldnast. Í dag hefur öllum ferðum Icelandair nema einni verið aflýst og nú fyrir hádegi voru nærri allar ferðir fimmtudagsins slegnar út af borðinu.
Svona hefur þetta verið hjá Icelandair í haust á meðan erlendu flugfélögin sem fljúga til Íslands gera breytingar með lengri fyrirvara og taka ferðirnar þá jafnframt úr sölu. Á heimsíðu SAS má til að mynda sjá uppfærða flugáætlun viku fram í tímann. Hún sýnir að ekkert verður af ferðum félagsins til Íslands frá Ósló og Kaupmannahöfn á því tímabili. Sömuleiðis hefur Wizz Air tekið út stóran hluta af Íslandsflugi sínu næstu vikur.
Icelandair heldur samt áfram að selja í sínar ferðir þó nánast engar líkur eru á að lagt verði í hann. Á heimasíðu félagsins er t.d. hægt að bóka flug í vikunni til New York, Parísar, Berlínar og Toronto þrátt fyrir að þotur Icelandair hafi ekki komið til þessara borga svo vikum skiptir.
Sú staðreynd að Icelandair fellir niður nærri allar flugferðir með aðeins tveggja sólarhringa fyrirvara setur líka svip á dagskrá fjölda erlendra flugvalla. Þar eru komur og brottfarir Icelandair oftar en ekki meðal þeirra fáu sem eru merktar „cancelled“. Þetta má sjá á heimasíðu flugvallanna í Frankfurt, Heathrow, Schiphol. Zurich, Ósló og fleiri flugvalla í dag.
Þessir starfhættir Icelandair rugla líka í ríminum flugfélög sem selja ferðir með Icelandair. Farþegi sem bókar flug með Finnair til Íslands í vikunni fær valkost um að bóka flug með finnska flugfélaginu til Stokkhólms og þaðan áfram með Icelandair. Bókunarvél Finnair veit ekki að það eru nánast engar líkur á að Icelandair fljúgi til sænsku borgarinnar í vikunni jafnvel þó ferðin sé til sölu. Á sama hátt mælir SAS með flugi Icelandair frá Ósló en íslenska félagið fellir niður allar ferðir sínar þangað.
Túristi hefur óskað skýringa á þessari stefnu frá Icelandair. Svarið verður birt þegar það fæst.