Samfélagsmiðlar

Fáir flugu með Icelandair til Boston en mun fleiri komu þaðan til Íslands

Yfirvöld hafa greitt Icelandair um tvær milljónir fyrir hverja ferð félagsins til Boston og heim aftur.

Frá Boston.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið gerði í upphafi heimsfaraldursins samning við Icelandair til að tryggja lágmarks flug til Evrópu og Bandaríkjanna. Ferðirnar vestur um haf takmörkuðust við flug til Boston og þangað hafa þotur Icelandair flogið eina til tvær ferðir í viku síðustu mánuði. Ekki aðeins með farþega heldur líka vörur.

Í farþegarýminu hafa þó fáir verið, alla vega á leiðinni út til Boston eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan.

Í apríl nýttu aðeins fjörutíu og þrír farþegar sér ferðirnar frá Keflavíkurflugvelli til Boston. Aftur á móti flaug 191 farþegi frá bandarísku borginni til Íslands.

Í þeim mánuði fóru þotur Icelandair átján ferðir til og frá Boston samkvæmt talningu Túrista. Að jafnaði hafa þá um fimm farþegar setið um borð á leiðinni vestur um haf en sextán á heimleiðinni.

Lausu sætunum fækkaði svo í júní en þá voru ferðirnar fjórtán og farþegahópurinn fór upp í 688 farþega. Þær tölur sem Túristi hefur fengið frá flugmálayfirvöldum í Boston ná ekki til seinni hluta ársins.

Sem fyrr segir hafa stjórnvöld styrkt áætlunarflug Icelandair til Boston og nam kostnaður ríkisins á tímabilinu 17. maí til 19. september nærri sextíu og sex milljónum króna samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu.

Á þessu fjögurra mánaða tímabili flaug Icelandair samtals sextíu og átta ferðir til og frá Boston. Kostnaður hins opinbera nam því tæpri einni milljón á hverja brottför.

Samningur ríkisins og Icelandair um flug til Bandaríkjanna rennur út í lok þessa mánaðar. Þess ber að geta að ekki hafa fengist upplýsingar um kostnað ríkisins af fluginu til Bostong frá byrjun mars og fram í miðjan maí né heldur frá miðjum september og til dagsins í dag.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …