Samfélagsmiðlar

Horfur Norwegian snarversna eftir „kjaftshögg“ morgunsins

Í herbúðum Norwegian er stemingin þung á þessari stundu.

norwegian vetur

Það er sérstaklega þungur vetur framundan hjá Norwegian.

Kröfuhafar og flugvélaleigur hafa haldið um stjórnartaumana í Norwegian frá því að fjárhagur flugfélagsins var endurskipulagður í vor. Það hefur þó alltaf legið fyrir að þessir aðilar munu ólíklega veita félaginu þann fjárhagslega stuðning sem þörf er á.

Sá bjargvættur sem stjórnendur norska flugfélagsins hafa helst horft til að undanförnu gaf þeim svar sitt í morgun og forstjórinn líkir niðurstöðunni við kjaftshögg.

Það liggur nefnilega núna ljóst fyrir að ríkisstjórn Noregs ætlar ekki að veita félaginu þann viðbótar stuðning sem leitað hafði verið eftir. Þetta tilkynnti Iselin Nybø, viðskiptaráðherra Noregs, í morgun.

Í framhaldinu sendi Norwegian frá sér tilkynningu þar sem segir að framtíð Norwegian sé nú mjög óljós en allt verði gert til að koma félaginu í gegnum krísuna.

Jakob Schram fer ekki leynt með vonbrigði sín í tilkynningu morgunsins. Hann bendir á að framlag Norwegian til norska þjóðarbúsins nemi um 18 milljörðum norskra króna á ári og um 24 þúsund manns hafi lifibrauð sitt af starfsemi félagsins.

Forstjórinn telur líka að stuðningur Norðmanna við fluggeirann í heimsfaraldrinum sé of lítill í samanburði við það sem þekkist víða annars staðar. Norwegian fékk þó þrjá milljarða norskra króna í stuðning frá norska ríkinu í vor. Aftur á móti tapar félagið um hálfum milljarði norskra kr. á mánuði eins og staðan er í dag.

Samkvæmt fréttum norska viðskiptablaðsins Dagens Næringsliv þá eru ekki margir kostir í stöðunni fyrir Norwegian í dag. Helst er það aðkoma erlends vogunarsjóðs sem gæti bjargað félaginu núna að mati viðmælenda blaðsins.

Það er engum blöðum um það að fletta að aukin Norwegian hefur reynst Icelandair erfiður keppinautur um þá farþega sem horfa mest í peninginn. Fargjöld Norwegian hafa nefnilega verið lág og ferðirnar tíðar frá mörgum evrópskum borgum. Þar með hefur hinn almenni farþegi haft kost á því að komast beint yfir hafið fyrir lítið í stað þess að þurfa að millilenda á Keflavíkurflugvelli.

Norwegian hefur einnig verið stórtækt í flugi til og frá Íslandi og var þannig það félag sem flutti flesta milli Íslands og Spánar áður en heimsfaraldurinn setti þær ferðir úr skorðum.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …