Samfélagsmiðlar

Íslensk hótel mun verr nýtt en þau evrópsku í haust

Herbergjanýtingin á íslenskum hótelum var nokkuð undir meðaltalinu í Evrópu í september. Að mati sérfræðinga má búast við að tekjur á hvert hótelherbergi á næsta ári verði tugi prósenta frá því sem var í fyrra.

Áfram verða gististaðir að treysta á innanlandsmarkaðinn að mati sérfræðinga.

Hertari aðgerðir í Evrópu vegna útbreiðslu kórónaveirunnar hafa dregið úr ferðalögum innan álfunnar. Nú í haust hefur herbergjanýting á evrópskum hótelum því versnað þónokkuð frá því sem var seinni hluta sumars.

Þannig var nýtingin að jafnaði 35,1 prósent á evrópskum hótelum í lok fyrstu viku október samkvæmt úttekt STR Global. Í september var meðaltalið rétt undir fjörutíu prósentum í viku hverri. Það var þó töluverður munur milli landa.

Sum staðar var herbergjanýtingin komin í nærri fimmtíu prósent í september en lægst var hún í kringum tuttugu prósent. Stuðst er við tölur frá þrettán Evrópulöndum í úttekt STR Global og er Ísland ekki þar á meðal.

Nýjar tölur Hagstofunnar sýna aftur á móti að herbergjanýtingin á hótelum hér á landi var aðeins 16,2 prósent í september. Það er þá um helmingi verri nýting en var að jafnaði í Evrópu á sama tíma.

Óhætt er að fullyrða að fámennur heimamarkaður skýri að miklu leyti hvers vegna hlutfallið er svona lágt hér á landi. Sömuleiðis hefur krafan um að allir fari í sóttkví við komuna til landsins haft áhrif á tölurnar í haust. Sú regla var tekin upp þann 19. ágúst en þá voru takmarkanir á ferðum ekki eins strangar í fjölda Evrópulanda. Þar með gætu fleiri ferðamenn hafa verið á ferðinni þar í september en hér á landi.

Að mati sérfræðinga STR Global þá verða innanlandsferðalög áfram helsti markaðurinn fyrir hótelgeirann. Í spá fyrirtækisins er svo gert ráð fyrir að meðaltekjur á hvert herbergi verði um fjörutíu prósent lægri á næsta ári í samanburði við það sem var í fyrra. Og það er ekki fyrr en árið 2024 sem tekjur á hverja gistieiningu verða álíka og þær voru árið 2019.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …