Samfélagsmiðlar

Engin ákvörðun um fjármögnun á síðustu þremur MAX þotunum

Sú var tíðin að Icelandair átti flestar þær þotur sem félagið flaug og stefnan var að að leigja minnihluta MAX þotanna. Nú þegar er félagið hins vegar búið að semja um endurleigu á sjö MAX þotum.

MAX þotur Icelandair.

Icelandair tilkynnti á aðfangadagskvöld að félagið hefði gengið frá samningi við írsku flugvélaleiguna Sky leasing um kaup á tveimur af þeim þremur Boeing MAX þotum sem félagið fær afhentar nú í vor. Icelandair leigir svo flugvélarnar til baka af Sky Leasing og gildir leigusamningurinn til næstu 12 ára.

Árið 2022 eiga þrjár MAX þotur í viðbót að bætast í flota Icelandair. Að sögn Ásdísar Pétursdóttur, upplýsingafulltrúa flugfélagsins, þá hefur ekki verið tekin ákvörðun um fyrirkömulag á fjármögnun á þessum þremur þotum.

Í því samhengi má rifja upp að Icelandair hefur átt Boeing 757 og Boeing 767 þotur sínar sjálft. Og það var stefna félagsins á sínum tíma að eiga meirihluta MAX þotanna.

Í dag er staðan hins vegar sú að félagið hefur selt og endurleigt sjö af þeim tólf MAX þotum sem félagið fær frá Boeing. Tvær flugvélar voru keyptar á rekstrarleigu og sem fyrr segir liggur ekki fyrir hvernig síðustu þrjá þoturnar verða fjármagnaðar.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …