Samfélagsmiðlar

Þjóðirnar sem bókuðu gistingu á Íslandi með stystum fyrirvara síðasta sumar

Næsta sumar gætu bókanir á gistingu hér á landi borist með stuttum fyrirvara líkt og það síðasta. Ef það verður raunin þá gætu þessar upplýsingar frá netrisanum Booking.com gefið vísbendingum um það sem koma skal.

Það er ennþá óljóst hvenær ferðalög milli heimsálfa verða með eðlilegum hætti á ný. Því er ekki útilokað að ferðamannastraumurinn hér á landi næsta sumar verði að miklu leyti bundinn við evrópska túrista líkt og í ár.

Og í ljósi óvissunar sem ennþá ríkir vegna kórónuveirunnar þá verða bókanir á ferðalögum næsta sumars væntanlega gerðar með óvenju stuttum fyrirvara.

Ef það verður raunin þá ætti íslensk ferðaþjónusta að horfa sérstaklega til þýska markaðarins því samkvæmt upplýsingum frá Booking.com þá voru Þjóðverjar sú erlenda þjóð sem bókaði flestar gistingar hér á landi yfir sumarmánuðina þrjá.

Hollendingar og Frakkar eru líka ofarlega á blaði eins og sjá má á listanum hér fyrir neðan. Íslendingar sjálfir voru aftur á móti langfjölmennastir á gististöðum landsins og það endurspeglast í lista Booking.com.

Nýtt efni

Ég hitti dræverinn minn við terminalinn í Keflavík. Hann var að koma úr transferi  frá Selfossi. Ég spurði  hvort hann væri á Sprinternum, „Nei ég er á nýja Benzinum  hjá  Ice-eitthvað. En hvað eigum við að taka marga pax spurði hann og eru allir með vácera eða eiga þeir að borga kontant?“  Daman á deskinum …

Nú eru 10 þotur á vegum Play í háloftunum en þær voru sex fyrir ári síðan. Umsvifin hafa því aukist  um meira en helming og í nýliðnum nóvember flutti félagið 107 þúsund farþega. Það er viðbót um 42 prósent frá sama tíma í fyrra. Viðbótin er minni en sem nemur auknu framboði og sætanýtingin var …

Rebecca Yarros er sex barna móðir. Hún þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast Ehlers-Danlos og hún á erfitt með svefn. Í mörg ár hefur hún vaknað um miðjar nætur og legið andvaka tímunum saman. Á hinum svefnlausu nóttum vandi hún sig á að setjast upp og lesa svokallaðar ástarsögur eða romance á fræðimáli bókaútgefenda. Þegar …

Vefmiðillinn Túristi hóf sitt ferðalag fyrir 14 árum en í dag birtist hann lesendum undir nýju nafni og í breyttum búningi, sem ekki er þó fullskapaður heldur í mótun: FF7 - Frásagnir og fréttir alla daga. Áfram verða ferðamál í öndvegi en leitað fanga víðar, birtar áhugaverðar og skemmtilegar frásagnir af ýmsu tagi og fréttir …

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Aðlögunarhæfni er meðal helstu styrkleika ferðaþjónustunnar. Það sýndi hún vel í kórónaveirufaraldrinum og það á örugglega eftir að reyna á þennan eiginleika aftur. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, kom inn á þetta í ávarpi sínu á morgunfundi SAF og SA um skattspor ferðaþjónustunnar. Ekki er langt síðan Þórdís Kolbrún gegndi starfi utanríkisráðherra og …

Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur, kynnti niðurstöður skýrslu sem Reykjavík Economics vann fyrir SAF um skattspor ferðaþjónustunnar - um það hvert raunverulegt framlag hennar er til samfélagsins. Byggt er á tölum frá 2022 og er meginniðurstaðan sú að skattspor ferðaþjónustunnar hafi verið rúmir 92 milljarðar króna en rúmir 155 milljarðar ef virðisaukaskattur er meðtalinn. Þetta eru …

Þessar breytingar á álögum á skemmtiferðaskipin sem koma til Grænlands taka gildi 1. janúar 2024. Við gerð fjárlaga síðasta árs náðist samkomulag milli flokkanna á grænlenska þinginu um að hefja að nýju innheimtu farþegagjalda. Hafnargjald var látið leysa farþegagjald af hólmi árið 2015. Vegna fjölgunar skemmtiferðaskipa og álagsins sem fylgir komum þeirra fyrir lítil samfélög …

norwegian vetur

„Umferðin í nóvember er alla jafna minni og líka í janúar og febrúar. Þú hefur þá um tvennt að velja. Fljúga með óbreyttum hætti, lækka verðið og fljúga hálftómum þotum. Hinn kosturinn er að minnka framboðið og spara pening. Áður fyrr valdi Norwegian fyrri leiðina en nýir stjórnendur hafa kosið seinni kostinn," sagði Svein Harald …