Finnska ríkið mun veita flugfélaginu Finnair óveðtryggt lán upp á 400 milljónir evra eða um 62 milljarða króna. Lánveitingin er gerð með fyrirvara um samþykki framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að lausafjárstaða félagsins hafi numið 725 milljónum evra í lok þriðja ársfjórðungs. Það er um 113 milljarðar króna.
Samkvæmt svari frá Finnair, við fyrirspurn Túrista, þá er þessi lánveiting hluti af þeim aðgerðum sem finnska ríkið og Finnair sömdu um í vor í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Talsmaður Finnair ítrekar að flugfélagið geti aðeins nýtt sér lánið til þrautavara og með því að uppfylla ákveðin skilyrði um lausafjárstöðu.
Topi Manner, forstjóri Finnair, segir í fyrrnefndri tilkynningu til kauphallarinnar í Helsinki að flugfélagið búi sig næsta ár með nokkrum ólíkum útgáfum af því hvernig megi endurbyggja leiðakerfi flugfélagsins.
„Við komum inn í Covid-19 faraldurinn með sterkan efnahagsreikning og lausafjárstöðu. Núna viljum við tryggja að komumst í gegnum þessa fordæmalausu tíma og getum haldið áfram á þeirri leið okkar að tengja saman Asíu og Evrópu og þróa Finnair í að verða nútímalegt fyrsta flokks flugfélag,“ segir Manner, forstjóri.
Finnska ríkið á 58 prósent hlut í Finnair. Svo há var hlutdeildin líka fyrir hlutafjárútboð félagsins síðastliðið sumar.