Samfélagsmiðlar

Icelandair: Við kjósum að vera bjartsýn

Sumaráætlun Icelandair byggir á tíðum ferðum til Norður-Ameríku og Evrópu en ennþá liggur ekki fyrir hvernig ferðalögum milli heimsálfa verður háttað. Upplýsingafulltrúi flugfélagsins segir of snemmt að segja til um hvort fækka þurfi ferðum í sumaráætluninni.

Þota Icelandair við flugstöðina í Denver en þangað ráðgerir félagið að fljúga daglega næsta sumar.

Í eðlilegu árferði þá væru ófáir nú þegar búnir að bóka ferðalög út í heim fyrir vorið og sumarið. Næstu vikur myndu svo streyma inn pantanir til flugfélaga og ferðaskrifstofa fyrir komandi vertíð. Núna er ástandið hins vegar þannig að það liggur ekki fyrir hvenær heimsbyggðin kemst á ferðina á ný þó bólusetningar fyrir Covid-19 séu komnar á dagskrá.

Vestanhafs vara sóttvarnaryfirvöld við því að næstu mánuðir verði erfiðir og það verði fyrst í júní sem búið verði að bólusetja bandarísku þjóðina. Á sama tíma hefur forstjóri Delta flugfélagsins sagt að líklega verði gerð krafa um að allir farþegar í alþjóðaflugi hafi verið bólusettir.

Óvissan um hvernig ferðalögum verður háttað á næstu misserum og sérstaklega þegar kemur að flugi milli heimsálfa er því mikil. Rekstur Icelandair, líkt og fleiri flugfélaga, byggir hins vegar á farþegaflugi yfir Norður-Atlantshafið.

Sá farþegahópur gerir Icelandair kleift að halda úti tíðum ferðum til fjölda margra áfangastaða. Markaðurinn fyrir flug til og frá Íslandi er einfaldlega of lítill fyrir tvær til þrjár ferðir á dag til Kaupmannahafnar, New York, Boston, Amsterdam og Parísar.

Aðspurð segir Ásdís Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, það vera of snemmt að segja til um hvort skera þurfi niður hluta af sumaráætlun félagsins. Hún bendir á að hlutirnir geti breyst hratt og því erfitt að spá.

„Við erum að sjá jákvæð bókunartrend fram í tímann. Fólk er þó að taka endanlegar ákvarðanir um ferðalög með miklu styttri fyrirvara en áður vegna óvissunnar þannig að það er ekki hægt að styðjast við hefðbundin bókunarmynstur á þessum tímum. Við kjósum að vera bjartsýn og munum reyna að hámarka sveigjanleika okkar til að þjónusta alla þá eftirspurn sem verður næsta sumar enda mikið undir að geta komið hratt til baka um leið og ástandið batnar,“ segir Ásdís.

Næsta sumar gerir sumaráætlun Icelandair ráð fyrir allt að áttatíu ferðum í viku til Bandaríkjanna og Kanada og ríflega tvöfalt fleiri til Evrópu.

Nýtt efni

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …

Sjóðir bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing minnkuðu um 3,9 milljarða dollara á fyrsta ársfjórðungi. Upphæðin jafngildir 550 billjónum íslenskra króna og skýringin á þessum mikla fjármagnsbruna liggur í endurteknum göllum í þeim flugvélum sem fyrirtækið framleiðir. Af þeim sökum hefur bandaríska flugöryggisstofnunin takmarkað afköstin í verksmiðjum Boeing við 38 Max þotur í mánuði. Þar með þurfa flugfélög …