Það voru rétt um sjö þúsund farþegar sem flugu með Icelandair í nóvember sem er umtalsvert minna en hjá hinum norrænu alþjóðaflugfélögunum. Hjá Icelandair fækkaði farþegunum líka hlutfallslega mest eins og sjá má á töflunni hér fyrir neðan. Framboðið dróst þó mest saman hjá Norwegian.
Þar fækkaði framboðnum sætiskílómetrum um 96 prósent en 95 prósent hjá Icelandair.
Þegar kemur að fraktflutningum þá fór heildarmagnið hjá Icelandair aðeins niður um tvö prósent þrátt fyrir miklu færri áætlunarferðir. Hjá Finnair voru umsvifin í fraktflutningum um helmingi minni en í fyrra en hvorki SAS né Norwegian gefa upp tölur á þessu sviði.