Samfélagsmiðlar

Þá takmarkast Íslandsflugið frá Frakklandi ekki lengur við París

Af íbúum Frakklands þá verða það ekki bara þeir sem eiga heima í höfuðborginni sem geta flogið beint til Íslands í sumar.

Horft yfir París.

Nærri fjörutíu þúsund franskir ferðamenn heimsóttu Ísland sumarið 2019. Aðeins Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Kínverjar voru þá fjölmennari í hópi túrista hér á landi.

Þrátt fyrir hinn stóra markað í Frakklandi þá hefur flug Icelandair þangað alltaf takmarkast við flug til og frá París. WOW air hélt hins vegar úti ferðum bæði frá höfuðborginni en líka Lyon. Eitt sumarið spreytti félagið sig einnig á frönsku riveríunni, nánar tiltekið í Nice.

Fransk-hollenska lággjaldaflugfélagið hefur svo veitt íslenskum flugfélögum samkeppni í París en í fyrra bætti félagið við ferðum hingað frá Nantes í vesturhluta Frakklands.

Ferðirnar þaðan voru hins vegar ekki settar í sölu á ný fyrir komandi sumar en nú hefur Transavia bætt úr því. Á heimasíðu félagsins er því á nýjan leik hægt að bóka áætlunarflug frá Nantes til Íslands í sumar. Viðtökurnar við þessa flugleið voru góðar í fyrrra líkt og Túristi fjallaði um á sínum tíma.

Þá sagði talskona félagins að það væri mikill áhugi á ferðum til Íslands meðal íbúa Nantes og nágrenni. „Fólk á svæðinu kann að meta að geta flogið beint til Íslands og áhuginn er mestur meðal þeirra sem vilja heimsækja áfangastaði þar sem nátturan er í aðalhlutverki,“ bætti hún við.

Brottfarir Transavia frá Nantes til Íslands eru á aðeins á dagskrá frá byrjun júlí og fram í september. Flogið er á 189 sæta Boeing þotum og í heildina verða sæti fyrir sautján hundruð farþega.

Þess má geta að stærsta flugfélag Frakklands, Air France, hefur látið íslenska markaðinn alveg vera en Transavia tilheyrir reyndar Air France/KLM samsteypunni. En einn af stjórnendum þess fyrirtækis á árunum 2015 til 2017 var Nína Jónsson sem situr í stjórn Icelandair í dag.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …