Þotur þýska flugfélagsins Lufthansa hafa flogið hingað til lands í allan vetur frá Frankfurt. Á tímabili var félagið eitt um flug milli Íslands og Þýskalands.
Nú í byrjun maí var ætlun Lufthansa að bæta við áætlunarferðum til Keflavíkurflugvallar frá Munchen en af því verður ekki. Ástæðan er lítil eftirspurn segir talsmaður Lufthansa í svari til Túrista.
Af þeim sökum hefur fyrstu ferð Lufthansa frá Munchen í ár verið seinkað til 17. júní. Farþegar sem áttu bókað flug frá Munchen fá í staðinn sæti í þotunum sem fljúga hingað frá Frankfurt.
Lufthansa gerir ráð fyrir að fljúga tvisvar í viku hingað frá Munchen í sumar en ferðirnar frá Frankfurt verða tíðari.
Þess má geta að Eurowings, systurfélag Lufthansa, gerir ráð fyrir áætlunarflugi til Íslands í sumar frá bæði Dusseldorf og Hamborg. Þotur Icelandair munu svo fljúga til Hamborg, Frankfurt og Munchen í sumar og Wizz Air ætlar að halda úti áætlunarferðum hingað frá Dortmund.
Telja má líklegt að stjórnendur Play horfi líka til þýska markaðarins en ennþá liggur ekki fyrir hvenær það félag fer í loftið.