Samfélagsmiðlar

Hafa bæði hætt sölu á áætlunarflugi milli Íslands og Montreal

Íbúar Montreal komast ekki lengur beint úr heimabyggð til Íslands.

Þegar flugsamgöngur til og frá landinu náðu hámarki, á árunum 2017 og 2018, þá buðu íslensku flugfélögin tvö og Air Canada upp á ferðir milli Íslands og Montreal. Þangað flugu þotur WOW air meira að segja allt árið um kring.

Icelandair og Air Canada tóku ekki við vetrarferðunum eftir brotthvarf WOW air og létu áfram ferðir yfir sumarmánuðina duga. Kanadískum ferðamönnum fækkaði svo töluvert hér á landi árið 2019 eins og sjá má á súluritinum hér fyrir neðan.

Áætlun Icelandair fyrir komandi sumar gerði ráð fyrir að félagið tæki upp þráðinn í Montreal á ný nú í sumarbyrjun en af því verður ekki. Allar ferðir til þessarar næst fjölmennustu borgar Kanada hafa verið teknir úr bókunarvél félagsins.

Stjórnendur Air Canada hafa einnig tekið út allar sínar ferðir til Íslands frá Montreal en gera áfram ráð fyrir fjórum ferðum í viku frá Toronto til Keflavíkurflugvallar. Fyrsta ferð er á dagskrá í byrjun júlí og verða 169 sæta Boeing MAX 8 þotur nýttar í Íslandsflug Air Canada í sumar.

Útgerð Icelandair í Kanada í sumar mun einskorðast við ferðir til Toronto og til Vancouver. Áður flaug félagið til fimm kanadískra borga.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …