Samfélagsmiðlar

Liggur ekki fyrir hvernig flugáætlunin verður í júní

Þota Icelandair í Denver en þangað stefnir félagið á að fljúga á ný í maí.

Á morgun, 1. maí, hefst áætlunarflug Icelandair til Tenerife og félagið tekur upp þráðinn í áætlunarflugi til fimm bandarískra borga síðar mánuðinum. Flugáætlun Icelandair í júní gerir svo ráð fyrir ennþá fleiri viðbótum og tíðari ferðum til flestra borga. Miðað við aðstæður má ljóst vera að framboðið er of mikið líkt og Túristi fjallaði um í fyrradag.

Spurður um áformin þá sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, á afkomufundi flugfélagsins í morgun, að áætlunin sem væri í sölu væri metnaðarfull. Það væri gert til að mæta eftirspurn á þeim mörkuðum sem verða tilbúnir til að ferðast.

„Við vitum ekki hver staðan verður á hverjum markaði en reynum að gera ekki miklar breytingar á áætluninni sex vikur fram í tímann. Tíu til tuttugu dögum fyrir brottför þurfum við stundum að breyta áætluninni vegna þess að bókunarstaðan er ekki nógu góð. Þannig erum við að stýra þessu, við verðum að vera kvik og sveigjanleg. Þannig að hvernig við munum fljúga í júnímánuði liggur ekki fyrir,“ útskýrði Bogi á fundinum. En það var Túristi sem lagði fram spurninguna.

Bogi bætti því við að horft væri til þess að truflanir yrðu sem minnstar fyrir viðskiptavinina en þetta væru aðstæðurnar sem verið væri að vinna við.

„Þetta hefur gengið vel á þessu ári og við teljum að við getum stýrt þessu vel áfram. En þetta er flókið verkefni í þessari stöðu.“

Samkvæmt talningu Túrista er Icelandair með rúmlega tvö hundruð brottfarir á viku á boðstólum nú í júní. Til samanburðar voru þær tæplega tvöfalt fleiri í júní árið 2019.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …