Samfélagsmiðlar

Rukka margfalt meira fyrir flugið héðan Varsjár en til Mílanó, Vínar og London

Wizz Air er eitt um flug milli Íslands og Varsjár og fargjöldin næstu vikur bera þess merki að margir ætli að fljúga þar á milli.

Nú í vetur hefur áætlunarflug ungverska flugfélagsins Wizz Air til Íslands takmarkast við ferðir frá Varsjá. Flugfélagið setur aftur á móti stefnuna á að hefja á ný flug hingað frá tíu öðrum evrópskum borgum í sumar. Þar af eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna eins og London, Mílanó og Vín.

Verð á farmiðum með Wizz Air þangað eru hins vegar miklu lægra en þegar kemur að fluginu til Chopin flugvallar í Varsjá.

Þetta er mjög áberandi þegar fargjöldin í næsta mánuði eru skoðuð. Þá kostar farmiði, aðra leiðina, frá Keflavíkurflugvell til Varsjá á bilinu 120 til 210 evrur. Það jafngildir 18.200 til 31.800 kr.

Aftur á móti er hægt að kaupa flugsæti til Vínarborgar í júní á 40 til 80 evrur (6.100 til 12.100 kr.). Ódýrustu miðarnir til Mílanó í júní kosta svo aðeins 25 evrur (3.800kr) en þeir dýrustu fjórfalt meira.

Verðið á flugmiðum með Wizz Air til Luton flugvallar, í útjaðri London, er líka töluvert undir því sem félagið rukkar fyrir flugið til Varsjár. Til Luton má komast fyrir 50 til 70 evrur eða 7.600 til 10.600 krónur í júní.

Það er sem sagt miklu dýrara að fljúga til höfuðborgar en til fyrrnefndra þriggja stórborga.

Megin skýringin á þessum mikla verðmun skrifast á eftirspurnina enda sveiflast verðskrá flugfélaga í takt við hana. Það eru einfaldlega miklu fleiri sem hafa ákveðið að ferðast milli Íslands og Póllands á næstunni en að fljúga hingað frá Mílanó, London og Vínarborg.

Það sést líka á verði farmiða Wizz Air frá Íslandi til pólsku borganna Katowice, Gdansk og Wroclaw. Það er mun hærra en til borganna sem eru vestar í Evrópu.

Nýtt efni

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …

Play tapaði 3,1 milljarði króna fyrir skatt á fyrsta ársfjórðungi í fyrra en núna var tapið 19 prósent hærra eða 3,7 milljarðar króna. Félagið jók framboðið um 63 prósent á milli þessara tveggja fjórðunga en í flota félagsins voru sex til átta þotur í byrjun síðasta árs en núna eru þær tíu. Einar Örn Ólafsson, …