Samfélagsmiðlar

Ætla að losa þriðjungi minna en Icelandair

Fyrir heimsfaraldur var stigvaxandi þungi í umræðunni um mengun af flugi. Þau mál eru ennþá á dagskrá nú þegar flugið er að fara í gang á ný.

Flugfélögin Ryanair og Wizz Air birta mánaðarlega upplýsingar um hver mengunin er af flugrekstrinum. Þessu fordæmi stefna stjórnendur Play á að fylgja samkvæmt því sem fram kemur í fjárfestakynningu félagsins.

Þar segir að gert sé ráð fyrir að losun gróðurhúsalofttegunda muni nema 65 grömmum á hvern floginn sætiskílómetra á næsta ári. Það þýðir í raun að losunin nemur um 160 kílóum á hvern farþega sem flýgur héðan til Kaupmannahafnar með félaginu.

Til samanburðar er losunin að jafnaði 58 grömm á sætiskílómetra hjá Wizz Air sem stendur sig best allra evrópskra flugfélaga á þessu sviði. Meginskýringin á árangri félagsins er nýlegur flugfloti og mjög há sætanýting. Af þeim sökum hefur losunin hjá Wizz Air hækkað í heimsfaraldrinum því þoturnar eru ekki eins þéttsetnar og áður.

Hjá Icelandair nemur losunin aftur á móti 99 grömmum á sætiskílómetra samkvæmt útreikningum í fjárfestakynningu Play. Munurinn á Play og Icelandair verður þá um þriðjungur.

Það má hins vegar gera ráð fyrir að losunin hjá Icelandair muni minnka í nánustu framtíð því nú er félagið að taka í notkun sífellt fleiri MAX þotur. Þær eru nefnilega mun sparneyttari en gömlu Boeing 757 og 767 þoturnar.

Það má líka horft til þess að fraktflutingar Icelandair hafa neikvæð áhrif á losun félagsins. Það þarf nefnilega ófáa lítra af þotueldsneyti til að fljúga með tugi tonna af frakt. Og þegar því magni er svo deilt niður á farþega þá verður niðurstaðan mun verri en ef aðeins ferðatöskur væru farangursrýminu.

Í því samhengi má benda á að Wizz Air og Ryanair eru ekki umsvifamikil í vöruflutningum. Það vinnur þá með félögunum þegar losun á hvern farþega er reiknuð út. Hver áform Play eru í fraktflugi liggur ekki fyrir því á þennan hluta starfseminnar er ekkert minnst á í fyrrnefndri fjárfestakynningu.

Ef stjórnendur Play ákveða að fara skora Icelandair á hólm í fraktflugi þá má um leið gera ráð fyrir að losun gróðurhúsalofttegunda á hvern sætiskílómetra aukist umfram þau markmið sem félagið hefur sett sér.

Nýtt efni

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur lækkað um helming síðastliðna 12 mánuði og þar af um nærri fjórðung frá áramótum. Fyrir helgi fór gengið niður í 1,03 kr. og markaðsvirði félagsins er núna 42,3 milljarðar. Eftir heimsfaraldur hefur það hæst farið upp í 95 milljarða króna en það var í júlí síðastliðnum. Á síðasta áratug náðu …

Ferðamönnum hefur fjölgað í friðlandi Hornstranda eins og víðar á landinu, áætlað er að um 10.500 manns hafi haldið í friðlandið síðasta sumar, sem var tölvuverð aukning frá sumrinu þar á undan, 2022. Ólíkt mörgum öðrum ferðamannastöðum er ekki ætlunin að auka mikið við innviði til að bregðast við auknum fjölda„Hlutverk ferðamannsins er að aðlagast …

Hjá erlendum hagstofum lenda íslenskir ferðamenn oft í flokknum „aðrir" þegar gefnar eru út tölur um gistinætur á hótelum. Þannig er það þó ekki í þýsku höfuðborginni og samkvæmt nýjustu tölum þaðan keyptu íslenskir gestir 5.530 gistinætur á hótelum í Berlín í janúar og febrúar. Þetta er meira en tvöföldun frá sama tíma í fyrra …

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 6 prósent og um 3,9 prósent ef húsnæði er tekið út fyrir sviga. Verðmælingar Hagstofunnar sýna aftur á móti að verð á farmiðum til útlanda lækkaði um 11,4 prósent í apríl í samanburði við sama mánuð í fyrra. Þá voru páskarnir aðra helgina í apríl en eftirspurn …

Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, hefur óskað eftir að láta af störfum. Hann mun sinna stöðunni þar til eftirmaður hans tekur við að því segir í tilkynningu. Ólafur Þór tók við fjármálasviði Play eftir að Þóra Eggertsdóttir „ákvað að segja skilið við félagið" í október 2022. Hún hafði þá gegnt stöðu fjármálastjóra allt frá …

Á árinu 2023 minnkaði sala í Danmörku á prentuðum bókum um 70,2 milljónir danskra króna (tæpa 1,5 milljarða íslenskra kr.) en á sama tíma jókst velta með stafrænar bækur, hljóð og e-bækur, um 35,3 milljónir danskra kr. (rúmar 700 milljónir kr). Einmitt þessi breyting kemur illa niður á rithöfundum landsins því tekjur þeirra og forlaganna …

Af þeim sex norrænu flugfélögum sem skráð eru á hlutabréfamarkað þá gengur best hjá hinu norska Norwegian. Félagið stokkaði upp leiðakerfið í heimsfaraldrinum, endursamdi við birgja og starfsfólk og í fyrra skilaði Norwegian methagnaði. Sú niðurstaða skrifaðist meðal annars á þá ákvörðun stjórnenda að draga töluvert úr umsvifunum yfir vetrarmánuðina. Það hefur leitt til að …

Í ágúst 2026 er áætlað að Victorian Fruit and Vegetable Market í höfuðborg Írlands opni dyr sínar á nýjan leik. Markaðurinn hefur verið lokaður í fimm ár og byggingin legið undir skemmdum en með hjálp 25 milljón evra þróunarstyrks er markmiðið að nýr markaður skáki ekki aðeins hinum víðfræga Enska markaði í Cork heldur mörkuðum …